Erlent

Stöðuvatn í Argentínu fullt af ösku

Nahuel Huapi stöðuvatnið í Argentínu er orðið uppfullt af ösku úr Puyehue eldfjallinu í Chile, sem nú hefur gosið látlaust í tæpar tvær vikur og sett flugsamgöngur í Suður-Ameríku og Eyjaálfu á annan endann.

Vatnið er staðsett mjög nálægt eldfjallinu, þó það sé í öðru landi, en vindar hafa beint öskunni úr gosinu yfir landamærin og gert það að verkum að stöðuvatnið, sem áður var fagurblátt, lítur nú út eins og fljótandi steypuhaf.



Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þá furðulegu sjón sem vatnið er orðið og fylgjast með kafara hætta sér ofan í fljótandi öskuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×