Erlent

Fyrrverandi forseti Túnis kveðst saklaus

Ben Ali sést hér með eiginkonu sinni. Þau eru sögð hafa stolið miklum fjármunum á meðan Ben Ali var við völd sem og skömmu áður en þau flúðu land.
Ben Ali sést hér með eiginkonu sinni. Þau eru sögð hafa stolið miklum fjármunum á meðan Ben Ali var við völd sem og skömmu áður en þau flúðu land. Mynd/AFP
Zine Ben Ali, fyrrverandi forseta Túnis, kveðst saklaus og neitar öllum ákærum á hendur sér, en réttarhöld yfir honum hefjast á morgun.

Ben Ali flúði ásamt fjölskyldu sinni til Saudi-Arabíu í janúar eftir umfangsmikil mótmæli í Túnis. Hann hafði þá verið við völd í 23 ár. Forsetinn fyrrverandi er meðal annars ákærður fyrir að hafa staðið fyrir morðum á mótmælendum og stolið háum fjármunum úr opinberum sjóðum.

Líkt og áður hefur komið fram verður Ben Ali ekki viðstaddur réttarhöldin. Hann dvelur áfram í Saudi-Arabíu og lítur ekki út fyrir að Sádar muni vísa Ben Ali og fjölskyldu úr landi eða hvað þá framselja forsetann fyrrverandi til Túnis.

Sjálfur gerir Ben Ali lítið úr réttarhöldunum og segir ringulreið einkenna Túnis þess dagana, ringulreið sem hann vonar að fari að ljúka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×