Íranska kvennalandsliðinu meinað að spila vegna keppnisbúnings Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2011 19:45 Íranir segja að lesa megi orðið ZION út úr merki leikanna Mynd/Nordic Photos/AFP
Möguleikar íranska kvennalandsliðsins í knattspyrnu að spila á ólympíuleikunum í London að ári virðast að litlu orðnir. Gengi liðsins í undankeppninni hefur verið með ágætum en það er keppnisbúningur landsliðsins sem alþjóða knattspyrnusambandið FIFA sættir sig ekki við. Guardian fjallar um málið í dag og má sjá keppnisbúning landsliðsins með því að smella hér. Íran átti að spila í undankeppninni gegn Jórdaníu í Amman í síðustu viku. Skömmu áður en leikurinn átti að hefjast var liðinu meinað að spila leikinn vegna keppnisbúningsins. Búningurinn hylur allan líkamann auk þess sem konurnar bera höfuðklút. FIFA hefur áður gert athugasemdir við keppnisbúning landsliðsins og meinað því að keppa. Í reglum FIFA segir að keppnisbúningar landsliða verði að vera lausir við pólitískar og trúarlegar tengingar. Í kjölfarið gerðu Íranir breytingar á honum. Knattspyrnuyfirvöld í Íran töldu sig hafa fengið samþykki FIFA og Sepp Blatter vegna nýja búningsins og spiluðu keppnisleik í kjölfarið. Að þeirra mati gaf því ekkert annað til kynna en keppnisbúningurinn stæðist reglugerð FIFA er snýr að ólympíuleiknum. Annað hefur komið á daginn. FIFA segir bæði landslið hafa verið minnt á að uppfylla reglur FIFA um keppnisbúninginn fyrir leikinn í Amman. Af þeim sökum voru nokkrir leikmenn Jórdaníu ekki valdir í leikmannahópinn. Vissulega hefði FIFA samþykkt fyrri búning liðsins. Sá búningur huldi hins vegar ekki háls og andlit líkt og sá nýi gerir. Íran var dæmt 3-0 tap í leiknum óspilaða í Jórdaníu og á fyrir vikið minni möguleika á að komast til Lundúna 2012. Íranir komust í fréttirnar fyrr í vetur þegar þeir voru afar ósáttir við merki ólympíuleikanna í London. Sjá hlekk hér að neðan.
Fótbolti Tengdar fréttir Íran hótar að sniðganga Ólympíuleikana í Lundúnum Ólympíunefnd Írans hefur hótað því að hún muni sniðganga Ólympíuleikana í Lundúnum á næsta ári nema að merki keppninnar verði breytt. 28. febrúar 2011 23:45 Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Sjá meira
Íran hótar að sniðganga Ólympíuleikana í Lundúnum Ólympíunefnd Írans hefur hótað því að hún muni sniðganga Ólympíuleikana í Lundúnum á næsta ári nema að merki keppninnar verði breytt. 28. febrúar 2011 23:45