Íslenski boltinn

Fylkismenn fögnuðu í Fossvoginum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Stefán
Fylkismenn menn fara í EM-fríið með tvo sigra í röð á bakinu eftir að þeir unnu 3-1 sigur á Víkingum í Víkinni í gærkvöldi. Fylkir verður því í hópi efstu liða deildarinnar þegar mótið hefst á nýjan leik í lok mánaðarins.

Ingimundur Níels Óskarsson, Baldur Bett og Albert Brynjar Ingason skoruðu mörk Fylkismanna en Pétur Georg Markan jafnaði leikinn í 1-1.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum á Víkinni í gærkvöldi og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×