Íslenski boltinn

Valur fimm stigum á undan Íslandsmeisturunum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Matthías Guðmundsson fagnar marki sínu.
Matthías Guðmundsson fagnar marki sínu. Mynd/Valli
Valsmenn héldu hreinu í fjórða sinn á tímabilinu í gærkvöldi þegar þeir unnu 2-0 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks á Vodafone-vellinum. Valsmenn hafa nú fimm stigum meira en Íslandsmeistarar Breiðabliks sem hafa fengið á sig 12 mörk í fyrstu sex leikjunum.

Matthías Guðmundsson og Hörður Sveinsson skoruðu mörk Valsmanna í sitthvorum hálfleiknum en þetta var annar sigur liðsins í röð. Valsmenn hafa farið langt á varnarleiknum í byrjun móts enda aðeins búnir að fá á sig þrjú mörk í fyrstu sex leikjunum.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum á Hlíðarenda í gærkvöldi og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×