Íslenski boltinn

Umfjöllun: Ferna Margrétar Láru í þægilegum sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Laugardalsvelli skrifar
Mynd/Stefán
Ísland vann þægilegan 6-0 sigur á Búlgaríu í fyrsta leik undankeppni EM 2013. Tvö mörk strax í upphafi leiks gáfu tóninn.

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fernu fyrir Ísland og er hún nú alls komin með 62 landsliðsmark á ferlinum í aðeins 73 leikjum. Sara Björk Gunnarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu hin mörk Íslands í leiknum.

Leikmenn Íslands byrjuðu af miklum krafti í leiknum og skoruðu tvívegis fyrstu tólf mínútunum. Mörkin hefðu þó auðveldlega getað orðið mun fleiri þar sem Íslendingar óðu í færum hvað eftir annað.

Af frammistöðu búlgarska liðsins í upphafi leiks að dæma leit út fyrir að markamet yrði slegið í Laugardalnum í kvöld en sú varð nú ekki raunin.

Búlgaría tók sig saman í andlitinu þrátt fyrir þessa erfiðu byrjun og náðu að gera leikmönnum Íslands mun erfiðara fyrir. Þær vörðust vel á eigin vallarhelmingi og gáfu íslensku miðvallarleikmönnunum lítið pláss með boltann.

Ísland náði þó að skora einu sinni í viðbót áður en flautað var til hálfleiks og var það eftir afar laglega stungusendingu Söru Bjarkar á Margréti Láru sem kláraði sitt örugglega.

Síðari hálfleikur hafði svo fátt upp á að bjóða nema mörkin þrjú. Búlgarar héldu áfram að pakka í vörn og lögðu allt kapp á að stöðva sóknarspil íslenska liðsins. Stelpurnar okkar héldu þó áfram hvað þær gátu til að skora fleiri mörk og náðu þrívegis í gegn.

Hólmfríður skoraði fyrst eftir laglegan undirbúning Fanndísar á hægri kantinum, þá Margrét Lára úr vítaspyrnu sem hún fiskaði sjálf. Það var svo viðeigandi að Margrét Lára skoraði fjórða markið sitt með síðustu spyrnu leiksins og tryggði þar með 6-0 sigur.

Niðurstaðan því afar öruggur sigur í leik sem skilur ekki mikið eftir sig. Skylduverkið var klárað og nú tekur við undirbúningur fyrir mun erfiðari leik gegn Noregi á Laugardalsvelli þann 17. september næstkomandi.

Ísland – Búlgaría 6-0 - tölfræðin1-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (6.)

2-0 Sara Björk Gunnarsdóttir (12.)

3-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (36.)

4-0 Hólmfríður Magnúsdóttir (63.)

5-0 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti (72.)

6-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (90.+2)

Dómari: Floarea Ionescu, Rúmeníu (6)

Skot (á mark): 18–4 (10-2)

Varin skot: Þóra 2 – Naydenova 4

Hornspyrnur: 6–0

Aukaspyrnur fengnar: 7–15

Rangstöður: 6–2

Ísland (4-3-3):

Þóra Björg Helgadóttir 7

Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir 7

Sif Atladóttir 7

Katrín Jónsdóttir 7

Hallbera Guðný Gísladóttir 7

(78. Þórunn Helga Jónsdóttir -)

Edda Garðarsdóttir 6

(72., Dagný Brynjarsdóttir -)

Katrín Ómarsdóttir 6

(72., Dóra María Lárusdóttir -)

Sara Björk Gunnarsdóttir 8

Fanndís Friðriksdóttir 6

Hólmfríður Magnúsdóttir 7

Margrét Lára Viðarsdóttir 8 – maður leiksins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×