Læstur inni í fimm klukkustundir 20. júlí 2011 14:09 Starfsmaðurinn hefur nú kært árásina til lögreglunnar á Sauðárkróki sem fer með rannsókn málsins. Myndin er úr safni
Starfsmaður meðferðarheimilis í Skagafirði sem fjórir unglingsdrengir réðust á um helgina hefur lagt fram kæru. Eftir árásina læstu drengirnir starfsmanninn inni í allt að fimm klukkustundir, stálu peningum og struku á bíl í eigu meðferðarheimilisins. Samkvæmt upplýsingum Vísis var starfsmaðurinn einn á vakt en árásin átti sér stað aðfaranótt mánudags. Meðferðar- og skólaheimilið Háholt er einkarekið á grundvelli þjónustusamnings við Barnaverndarstofu. Þar dvelja 15 til 18 ára unglingar sem eiga við alvarlegan hegðunarvanda að stríða. Unglingarnir hafa ýmist leiðst út í fíkniefnaneyslu, komist í kast við lögin, eiga í vandræðum í skóla og/eða eiga í félagslegum vanda af ýmsu tagi.Þurfti að leita aðhlynningar Unglingsdrengirnir sem réðust á starfsmanninn í Háholti eru 16-18 ára. Þeir fundust á gistiheimili á Akureyri á mánudaginn. Farið var með tvo drengjanna aftur í Háholt en hina tvo á Stuðla í Reykjavík. Starfsmaðurinn losnaði úr prísundinni þegar annar starfsmaður kom á vakt. Starfsmaðurinn sem ráðist var á reyndist ekki mikið slasaður en þurfti þó að leita aðhlynningar vegna áverka sem hann hlaut. Maðurinn hefur nú kært árásina til lögreglunnar á Sauðárkróki sem fer með rannsókn málsins.Árásin litin alvarlegum augum Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, sagði í samtali við Vísi í gærkvöldi að farið verði yfir öryggismál í Háholti. „Við lítum alltaf alvarlegum augum atvik af þessu tagi. Það er alveg ljóst að þegar um er að ræða líkamsárás og ég tala nú ekki um þegar ofan á þetta bætist að þeir komust yfir bifreið, sem er náttúrulega drápstæki í sjálfu sér í höndum unglinga, er það háalvarlegur hlutur."
Tengdar fréttir Réðust á starfsmann meðferðarheimilis og struku Fjórir unglingsdrengir réðust á starfsmann á meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði síðastliðinn sunnudag. Því næst læstu þeir starfsmanninn inni, stálu peningum og struku á stolnum bíl. Frá þessu er greint á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar kemur fram að meiðsl starfsmannsins hafi verið minniháttar. 19. júlí 2011 19:57 Árás á starfsmann meðferðarheimilis litin alvarlegum augum „Það er alveg ljóst þegar um er að ræða líkamsárás og ég tala nú ekki þegar ofan á þetta bætist að þeir komust yfir bifreið, sem er náttúrulega drápstæki í sjálfum sér í höndum unglinga, að það er háalvarlegur hlutur," segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, um mál fjögurra unglingsdrengja sem réðust á starfsmann meðferðarheimilis í Skagafirði á sunnudaginn og struku þaðan á stolinni bifreið. 19. júlí 2011 20:45 Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira
Réðust á starfsmann meðferðarheimilis og struku Fjórir unglingsdrengir réðust á starfsmann á meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði síðastliðinn sunnudag. Því næst læstu þeir starfsmanninn inni, stálu peningum og struku á stolnum bíl. Frá þessu er greint á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar kemur fram að meiðsl starfsmannsins hafi verið minniháttar. 19. júlí 2011 19:57
Árás á starfsmann meðferðarheimilis litin alvarlegum augum „Það er alveg ljóst þegar um er að ræða líkamsárás og ég tala nú ekki þegar ofan á þetta bætist að þeir komust yfir bifreið, sem er náttúrulega drápstæki í sjálfum sér í höndum unglinga, að það er háalvarlegur hlutur," segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, um mál fjögurra unglingsdrengja sem réðust á starfsmann meðferðarheimilis í Skagafirði á sunnudaginn og struku þaðan á stolinni bifreið. 19. júlí 2011 20:45