Írar sæta harðri gagnrýni vegna fóstureyðinga 17. desember 2010 04:30 Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að fóstureyðingabann brjóti í bága við réttindi kvenna:
Stjórnarskrárbann við fóstureyðingum á Írlandi brýtur í bága við réttindi þungaðra kvenna. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þessari niðurstöðu í gær og gagnrýnir írsk stjórnvöld harðlega. Bann við fóstureyðingum er í stjórnarskrá Írlands. Samkvæmt gömlum lögum frá árinu 1861 er hægt að lögsækja bæði lækni og sjúkling fyrir morð ef fóstureyðing reynist ekki hafa verið lífsnauðsynleg. Þó úrskurðaði Hæstiréttur Írlands árið 1992 að konur í lífshættu ættu að fá að fara í fóstureyðingu á Írlandi í stað þess að þurfa að ferðast til Englands eða lengra. Lagadeilan hefur staðið yfir í átján ár og fjölmargar konur hafa þurft að ferðast milli landa vegna fóstureyðinga. Dómarar Mannréttindadómstólsins sögðu rangt af Írum að viðhalda lagalegri óvissu. Málið sem nú var dæmt í hefur verið í vinnslu í fimm ár. Þrjár konur, sem þurftu að fara úr landinu til að fara í fóstureyðingar, kærðu írsk stjórnvöld. Ein kvennanna átti fjögur börn fyrir og öll voru þau í fóstri annars staðar. Önnur vildi ekki verða einstæð móðir, og sú þriðja var frá Litháen en var stödd í Írlandi vegna sjaldgæfs krabbameins. Ekki þótti sýnt fram á nægjanlega hættu á heilsu fyrstu kvennanna tveggja. Sú þriðja var hins vegar í lífshættu og voru írsk stjórnvöld dæmd til að borga henni fimmtán þúsund evrur í skaðabætur.- þeb
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Fleiri fréttir Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Sjá meira