Þúsundir heimila án vatns dögum saman 30. desember 2010 04:00 Íbúar í Belfast þurfa margir að hafa töluvert fyrir því þessa dagana að nálgast vatn fyrir heimilið. nordicphotos/AFP
Þúsundir heimila á Norður-Írlandi hafa verið án vatns dögum saman eftir frosthörkurnar undanfarið. Víða sprungu rör í frostinu og svo þegar þiðnaði á ný lak vatnsforðinn að stórum hluta út í jarðveginn án þess að berast inn á heimilin. Víða þurfti að skrúfa fyrir vatnið á meðan skemmdir voru kannaðar og reynt að gera við. Sú vinna hefur gengið hægt, ekki síst vegna þess að erfitt hefur reynst að finna skemmdir í yfirgefnum húsum þar sem leiðslur hafa sprungið. Íbúar hafa því þurft að ná sér í vatn, annað hvort keypt á flöskum úr búðum eða í neyðarvatnstönkum sem komið hefur verið upp á götuhornum. Óttast er að sjúkdómsfaraldrar geti brotist út ef ástandið dregst á langinn. Ofan á þetta bætast svo flóð, sem komið hafa á Norður-Írlandi síðustu daga. Sums staðar hefur flóðavatnið mengast af skólpvatni, sem enn eykur áhyggjur manna af sjúkdómum. Stjórnvöld hafa setið á neyðarfundum vegna ástandsins. Sumar fjölskyldur hafa verið án rennandi vatns átta daga í röð og mega reikna með því að nokkrir dagar líði enn áður en þær fá vatn heim til sín. „Fólk með ungar fjölskyldur hefur ekki getað sturtað niður úr salernum eða þvegið sér,“ segir Peter Maguire, heimilislæknir á Norður-Írlandi. „Þetta er einfaldlega ekki boðlegt.“- gb
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Sjá meira