Nítján lönd hunsa athöfnina 9. desember 2010 05:30 Mótmælaborði með mynd af Liu Xiaobo, handhafa friðarverðlauna Nóbels í ár. Fréttablaðið/AP
Nítján lönd, að Kína meðtöldu, ætla ekki að senda fulltrúa við afhendingu friðarverðlauna Nóbels til kínverska mótmælandans Liu Xiaobo, að því er fram kemur í tilkynningu norsku Nóbelsnefndarinnar. Afhendingin fer fram á morgun, föstudag. Meðal landa sem afþakkað hafa boð um að vera við athöfnina eru Rússland, Pakistan, Serbía, Íran, Venesúela og Kúba. Nóbelsnefndin segir 44 lönd hafa þekkst boðið. Stjórnvöld í Kína reiddust mjög þegar friðarverðlaun Nóbels voru veitt Liu Xiaobo, en hann afplánar ellefu ára fangelsisdóm í Kína fyrir undirróðursstarfsemi, eftir að hafa með fleirum ritað ákall um umbætur á stjórnmálakerfi landsins. Jiang Yu, talskona kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði blaðamönnum í gær að norska Nóbelsnefndin væri að setja á svið and-kínverskan farsa. „Við breytum ekki okkar háttum þrátt fyrir truflun frá einhverjum trúðum og hverfum ekki af okkar braut,“ sagði hún. Ættingjar Liu hafa ekki fengið leyfi stjórnvalda í Kína til að yfirgefa landið til að veita friðarverðlaununum viðtöku fyrir hans hönd. - óká
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira