Erlent

Móti viðbragðsáætlun vegna olíuleka

Mynd/AP
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir að tryggja verði að slys eins og það sem varð á Mexíkóflóa fyrir um mánuði síðan endurtaki sig ekki. Það var 20. apríl síðastliðinn sem stór olíuborpallur BP sökk í flóanum með þeim afleiðingum að olía lekur nú í hafið. Um 800 þúsund lítrar af olíu streyma út í hafið úr borholunni á degi hverjum að sögn BP en sérfræðingar telja að magnið sé mun meira.

Obama hefur skipað nefnd sem ætlað er að fara yfir olíulekann og koma með tillögur um úrbætur svo olíufélög og stjórnvöld geti komið í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Hann vill jafnframt að nefndin taki sérstaklega út þátt, og þá einkum aðgerðarleysi, bandarískra stjórnvalda í atvikinu á Mexíkóflóa.

Demókratinn Bob Graham, sem sat um árabil í öldungadeild Bandaríkjaþings, og repúblíkaninn William Reilly, sem stýrði Umhverfisstofnun Bandaríkjanna í stjórnartíð George Bush eldri, fara fyrir nefndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×