Umfjöllun: Fyrsti sigur Vals í rúma tvo mánuði Stefán Árni Pálsson skrifar 16. ágúst 2010 14:33 Úr leik liðanna í kvöld. Mynd/Stefán
Valsmenn unnu langþráðan sigur, 0-1, á Fylkismönnum í Árbænum í kvöldi í 16.umferð Pepsi-deildar karla. Haukur Páll Sigurðsson skoraði eina mark leiksins og tryggði Valsmönnum sinn fyrsta sigur í rúmlega tvo mánauði. Fyrir leiki kvöldsins í Pepsi-deildinni voru Valsarar í áttunda sæti með 19 stig, en Fylkismenn í því níunda með 18 stig. Valsmenn gerðu 0-0 jafntefli við Grindvíkinga í virkilega bragðdaufum leik í síðustu umferð, en Fylkismenn náðu aftur á móti að leggja sterkt lið Fram í dramatískum leik , 1-2. Það var því sannkallaður sex stiga leikur í vændum í Árbænum. Leikurinn hófst heldur rólega en bæði lið áttu erfitt með að fóta sig og náðu ekki að halda boltanum innan liðsins. Valsmenn voru ívið sterkari fyrstu mínúturnar en þegar leið á fyrri hálfleikinn þá fóru Fylkismenn að sækja og virtust líklegri. Fyrsta alvöru færi leiksins kom eftir um hálftíma leik, en þá átti Albert Brynjar Ingason , leikmaður Fylki, fínt skot sem hafnaði í þverslánni. Tíu mínútum síðar fengu Valsmenn hornspyrnu sem Martin Pedersen tók. Boltinn barst inn í teig Fylkismanna og eftir mikið klafs þá náði Haukur Páll Sigurðsson til knattarins og þrumaði honum í netið alveg óverjandi fyrir Fjalar í markinu. Markið kom þvert gegn gangi leiksins og Fylkismenn virkilega ósáttir. Eftir mark Valsmanna þá fóru Fylkismenn að pressa að marki gestanna og náðu nokkrum ágætum sóknum fyrir lok hálfleiksins en allt kom fyrir ekki og því var staðan 0-1 fyrir Val í hálfleik, en allt opið. Síðari hálfleikurinn byrjaði rétt eins og sá fyrri, mjög svo rólega. Valsmenn bökkuðu þegar leið á seinni hálfleikinn og Fylkismenn byrjuðu hægt og rólega að pressa að marki gestanna. Á 55. mínútu vildu Fylkismenn fá dæmda vítaspyrnu þegar Albert Brynjar Ingason féll innan vítateigs , en Gunnar Jarl Jónsson , dómari leiksins, sá ekki ástæðu til þess að dæma neitt og létt leikinn halda áfram. Tíu mínútum síðar vildu síðan Valsmenn einnig fá dæmda vítaspyrnu þegar Jón Vilhelm Ákason var feldur innan vitateigs, en aftur ákvað Gunnar Jarl að láta leikinn halda áfram. Áhorfendur voru heldur betur ekki sáttir í báðum tilvikum en mjög líklega réttir dómar hjá góðum dómara leiksins. Þegar um 5 mínútur voru eftir af leiknum þá meiddist Albert Brynjar Ingason. Ólafur Þórðarson ,þjálfari Fylkis, hafði notað allar sínar skiptingar og því spiluðu Fylkismenn einum færri í nokkrar mínútur. Heimamenn fengu nokkur hálffæri í restina og hefðu með smá heppni getað jafnað leikinn en svo var ekki og því niðurstaðan 0-1 sigur Valsmanna. Virkilega mikilvægur sigur fyrir Val, en það voru komnir rúmlega tveir mánuðir frá síðasta sigri. Varnarleikur liðsins hefur batnað mikið en það verður að segjast að sóknartilburðir Valsara voru ekki uppá marga fiska í kvöld. Fylkir 0 - 1 Valur Haukur Páll Sigurðsson (39.) Áhorfendur: 1039 Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 8 Skot (á mark): 11 -11 (5-5) Varin skot: Fjalar 1 - Kjartan 4 Horn: 8 - 4 Aukaspyrnur fengnar:10 - 9 Rangstöður: 1 - 2 Fylkir 4-5-1: Fjalar Þorgeirsson 5 Tómas Þorsteinsson 4 Þórir Hannesson 5 Kristján Valdimarsson 5 Andri Þór Jónsson 5 Valur Fannar Gíslason 4 (69. Ólafur Ingi Stígsson 5 ) Ásgeir Börkur Ásgeirsson 5 Pape Mamadou Faye 4 (60. Kjartan Ágúst Breiðdal 5) Andrés Már Jóhannesson 4 Ingimundur Níels Óskarsson 4 (60.Ásgeir Örn Arnþórsson 5 ) Albert Brynjar Ingason 6 Valur 4-5-1:Kjartan Sturluson 5 Martin Pedersen 4 Atli Sveinn Þórarinsson 5 Greg Ross 6 Rúnar Már Sigurjónsson 4 Þórir Guðjónsson 3 (70. Baldur Ingimar Aðalsteinsson 5)Haukur Páll Sigurðsson 6 * Maður leiksins Ian Jeffs5 Jón Vilhelm Ákason 4 Arnar Sveinn Geirsson 6 Diarmuid O´Carrol 2 Leiknum var lýst beint á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Til þess að sjá lýsinguna þarf að smella hér: Fylkir - Valur
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fleiri fréttir Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Sjá meira