Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. október 2026 20:35 Íslensku strákarnir gerðu markalaust jafntefli gegn Eistum í Tallinn. Alex Nicodim/NurPhoto via Getty Images Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði markalaust jafntefli er liðið heimsótti Eistland í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinn í kvöld. Stigið tryggir að íslensku strákarnir tróna á toppi riðilsins fram í næsta landsleikjahlé. Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og var nálægt því að koma sér í færi strax á upphafssekúndum leiksins. Það var svo á 12. mínútu að lang hættulegasta færi fyrri hálfleiksins leit dagsins ljós. Gylfi Þór Sigurðsson lyfti þá hornspyrnu inn á teiginn sem Andri Lucas Guðjohnsen reyndi að skalla í átt að marki, en hitti ekki boltann og Maksim Paskotsi skallaði þess í stað í átt að eigin marki. Á einhvern ótrúlegan hátt náðu Eistar hins vegar að bjarga á línu. Einhverjir Íslendingar vildu meina að boltinn hafi verið kominn yfir línuna, en erfitt var að sjá á endursýningum hvort svo hafi verið. Eftir þetta varð varð leikurinn jafnari og liðin skiptust í raun á að komast í fínar stöður. Eistar bönkuðu nokkrum sinnum á dyrnar hjá íslenska liðinu, en þó aldrei nógu fast til að fá að koma inn. Ekki frekar en íslenska liðið og staða í hálfleik því 0-0. Síðari hálfleikur var svo frekar rólegur lengst af. Íslenska liðið hélt ágætlega í boltann, en ef eitthvað var voru Eistarnir jafnvel líklegri til að koma boltanum í netið. Í raun var þó lítið að frétta í síðari hálfleik. Eistarnir komust í einstaka stöður, en þess á milli hélt íslenska liðið boltanum. Það var engu líkara en að liðin væru bara sátt með gefinn hlut. Því fór það svo að lokum að niðurstaðan varð markalaust jafntefli. Ísland trónir því enn á toppi 4. riðils C-deildar Þjóðadeildarinnar, nú með átta stig eftir fjóra leiki, tveimur stigum meira en Eistar sem sitja í öðru sæti. Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta