Íslenski boltinn

Verður spilandi aðstoðarþjálfari og lögfræðingur á Selfossi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Auðun hefur hug á því að fara út í þjálfun og segir það vera mikið tækifæri að fá að starfa með Loga Ólafssyni.
Auðun hefur hug á því að fara út í þjálfun og segir það vera mikið tækifæri að fá að starfa með Loga Ólafssyni. Fréttablaðið/Vilhelm

Selfyssingar eru duglegri á leikmannamarkaðnum eftir fall úr úrvalsdeild en þeir voru fyrir leiktíðina í úrvalsdeildinni. Í gær nældi félagið í varnarmanninn sterka Auðun Helgason, sem skrifaði undir eins árs samning og verður spilandi aðstoðarþjálfari.

„Þetta er virkilega spennandi verkefni. Það blundar í mér að fara út í þjálfun þegar ferlinum lýkur og það er frábært tækifæri að fá að vinna með Loga [Ólafssyni] og vonandi verður samstarfið gott,“ sagði Auðun, sem hefur verið í viðræðum við þrjú félög síðan hann gerði starfslokasamning við Grindavík.

Auðun hefur verið að nema lögfræði og stefnir að því að útskrifast næsta vor. Að ganga í raðir Selfyssinga hjálpar honum að byrja lögfræðiferilinn.

„Formaður knattspyrnudeildarinnar er með lögfræðistofu bæði á Selfossi og í Reykjavík. Það voru fyrirheit um að ég kæmist að hjá honum þegar ég klára námið,“ sagði Auðun, sem var afar hamingjusamur með lendinguna í sínum málum og er spenntur fyrir sumrinu á Selfossi.

„Ég stefni á að flytja inn á Selfoss næsta sumar svo ég geti einbeitt mér að verkefninu af fullum krafti. Við ætlum okkur beint upp og það er metnaður hjá félaginu. Það er með frábæran þjálfara og svo kemur Markus Kislich styrktar­þjálfari til með að þjálfa strákana líka. Það er fullt af efnilegum strákum í liðinu og vonandi getur einn gamall eins og ég hjálpað til,“ sagði hinn 36 árs gamli Auðun léttur er hann rúllaði inn á Selfoss til að skrifa undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×