Verður spilandi aðstoðarþjálfari og lögfræðingur á Selfossi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 30. október 2010 08:00 Auðun hefur hug á því að fara út í þjálfun og segir það vera mikið tækifæri að fá að starfa með Loga Ólafssyni. Fréttablaðið/Vilhelm
Selfyssingar eru duglegri á leikmannamarkaðnum eftir fall úr úrvalsdeild en þeir voru fyrir leiktíðina í úrvalsdeildinni. Í gær nældi félagið í varnarmanninn sterka Auðun Helgason, sem skrifaði undir eins árs samning og verður spilandi aðstoðarþjálfari. „Þetta er virkilega spennandi verkefni. Það blundar í mér að fara út í þjálfun þegar ferlinum lýkur og það er frábært tækifæri að fá að vinna með Loga [Ólafssyni] og vonandi verður samstarfið gott,“ sagði Auðun, sem hefur verið í viðræðum við þrjú félög síðan hann gerði starfslokasamning við Grindavík. Auðun hefur verið að nema lögfræði og stefnir að því að útskrifast næsta vor. Að ganga í raðir Selfyssinga hjálpar honum að byrja lögfræðiferilinn. „Formaður knattspyrnudeildarinnar er með lögfræðistofu bæði á Selfossi og í Reykjavík. Það voru fyrirheit um að ég kæmist að hjá honum þegar ég klára námið,“ sagði Auðun, sem var afar hamingjusamur með lendinguna í sínum málum og er spenntur fyrir sumrinu á Selfossi. „Ég stefni á að flytja inn á Selfoss næsta sumar svo ég geti einbeitt mér að verkefninu af fullum krafti. Við ætlum okkur beint upp og það er metnaður hjá félaginu. Það er með frábæran þjálfara og svo kemur Markus Kislich styrktarþjálfari til með að þjálfa strákana líka. Það er fullt af efnilegum strákum í liðinu og vonandi getur einn gamall eins og ég hjálpað til,“ sagði hinn 36 árs gamli Auðun léttur er hann rúllaði inn á Selfoss til að skrifa undir.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira