Essien snéri aftur og tryggði Chelsea þrjú stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2010 21:41 Mickael Essien fagnar hér sigurmarki sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Chelsea vann 1-0 sigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og jók forskot sitt á toppnum. Marouane Chamakh skoraði bæði mörk Arsenal í sigri á Wolves en Liverpool náði bara jafnatefli á móti Wigan. Mickael Essien kom aftur inn í lið Chelsea eftir meiðsli og skoraði eina mark leiksins eftir hálftíma leik þegar hann skallaði inn fyrirgjöf Salomon Kalou. Chelsea hafði aldrei tapað tveimur leikjum undir stjórn Carlo Ancelotti og það breyttist ekki í kvöld. Marouane Chamakh skoraði bæði mörk Arsenal í 2-0 útisigri á Úlfunum og komu mörkin í upphafi og enda leiksins. Marouane Chamakh var fljótur að koma Arsenal í 1-0 en hann skallaði inn fyrirgjöf Tomas Rosicky áður en mínúta var liðin. Chamakh innsiglaði síðan sigurinn í uppbótartíma. Liverpool náði ekki að fylgja sigrinum á Chelsea eftir því liðið náði aðeins að taka með sér eitt stig frá Wigan eftir 1-1 jafntefli. Fernando Torres kom Liverpool í 1-0 eftir sjö mínútur eftir að hafa fengið frábæra sendingu inn fyrir frá Steven Gerrard. Hugo Rodallega jafnaði á leikinn á 52. mínútu þegar hann nýtti sér slæm markvarðarmistök Pepe Reina. Aston Villa komst þrisvar yfir á móti Blackpool og vann 3-2 sigur. James Collins skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Jason Roberts tryggði Blackburn 2-1 útisigur á Newcastle þegar hann skoraði sigurmarkið átta mínútum fyrir leikslok. Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld:West Ham United-West Bromwich Albion 2-2 0-1 Peter Odemwingie, víti (39.), 1-1 Scott Parker (43.) 2-1 Frédéric Piquionne (50.), 2-2 Pablo Ibáñez (71.)Wigan Athletic-Liverpool 1-1 0-1 Fernando Torres (7.), 1-1 Hugo Rodallega (52.)Wolves-Arsenal 0-2 0-1 Marouane Chamakh (1.), 0-2 Marouane Chamakh (90.+3)Aston Villa-Blackpool 3-2 1-0 Stewart Downing (28.), 1-1 Marlon Harewood (45.), 2-1 Nathan Delfouneso (60.), 2-2 DJ Campbell (86.), 3-2 James Collins (88.)Chelsea-Fulham 1-0 1-0 Mickael Essien (30.)Newcastle United-Blackburn 1-2 0-1 Morten Gamst Pedersen (3.), 1-1 Andrew Carroll (47.), 1-2 Jason Roberts (82.)
Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira