Innlent

Náðu í útigangskindur á Síðufjalli

Á annan tug vaskra smala og sveit smalahunda gengu á Síðufjall í Borgarfirði um helgina og sóttu þangað tuttugu útigangskindur, sem sést hefur til í fjallinu af og til í vetur.

Eftir talsverðan eltingaleik við ljón styggar kindurnar, tókst loks að koma þeim til byggða. Reyndust þar vera 30 kindur, þar af tveir hrútar, svo ekki verða þær lamblausar í vor, að því er fréttavefurinn Skessuhorn getur sér til um, en ástarlíf kinda blómstrar í kringum jól og áramót, og ber ávöxt á vorin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×