Íslenski boltinn

Umfjöllun: Frjáls og flæðandi sóknarleikur Valsmanna

Ari Erlingsson skrifar

Valsmenn tóku á móti Stjörnumönnum í 19. umferð Pepsí deildar karla í kvöld. Lokatölur leiksins 5-1 sigur Valsmanna sem ef til vill kom mörgum í opna skjöldu. Stórsigur Valsmanna og líklegast besti leikur þeirra undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar.

Leikurinn byrjaði rólega og lítið markvert gerðist fyrsta korterið. Eftir 19 mínútna leik náðu Valsmenn hinsvegar forystu. Hilmar Þór Hilmarsson átti þá glórulausa þversendingu í átt að sínu eigin marki sem Arnar Sveinn Geirsson komst inn í. Bjarni Þórður Halldórsson markvörður Stjörnunnar gerði sitt besta til að verjast Arnari en það tókst ekki betur til en svo að hann braut á Arnari. Kristinn Jakobsson dæmdi því víti auk þess að spjalda Bjarna. Martin Pedersen steig á punktinn og skoraði örugglega. 1-0 fyrir Valsmenn.

Þeir rauðu komust svo í 2-0 forystu er Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði með skalla eftir hamagang í teignum og sendingu Rúnars Sigurjónssonar. Á 41 mínútu skoraði svo Arnar Sveinn Geirsson af mikilli yfirvegun. Arnar slapp einn gegn Bjarna Markverði eftir sendngu frá Jeffs, kláraði færið snyrtilega og Valsmenn fóru því með 3-0 forystu til búningsherbergja.

Eitthvað hefur Bjarni Jóhannsson messað yfir sínum mönnum í hálfleik því þeir virtust skarpari á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Halldór Orri klúðraði til að mynda dauðafæri í upphafi hálfleiksins. Halldór bætti þó að einhverju leyti upp fyrir færaklúðrið með því að minnka muninn í 3-1 á 67 mínútu. Halldór skoraði úr vítaspyrnu og hefur líklega valdið aðdáendum sínum um allan heim miklum vonbrigðum með því að fagna á látlausan og venjubundin hátt.

Skömmu eftir mark Halldórs fékk Jóhann Laxdal sitt annað gula spjald og þar með það rauða frá Kristni dómara. Við það sprungu Garðbæingar endanlega á limminu og svekkelsi þeirra var greinilegt. Valsmenn gengu á lagið og sóttu stíft það sem eftir lifði leiks. Sóknarþungi Valsmanna skilaði árangri á 81 mínútu er Jón Vilhelm Ákason skoraði glæsilegasta mark leiksins með langskoti efst í markhornið. Það var svo varamaðurinn Matthías Guðmundsson sem innsiglaði 5-1 stórsigur Valsmanna á 92 mínútu með auðveldu marki frá markteig eftir sendingu Þóris Guðjónssonar.

Valsmenn geta vel við unað. Ekki nóg með það úrslitin hafi verið stórkostleg heldur var spilamennska liðsins afbragðsgóð. Fremstu fjórir menn í sóknarlínu Vals voru á stöðugri hreyfingu og má segja að þeir hafi ekki spilað með eiginlegan framherja. Jón Vilhelm sem byrjaði sem fremsti maður féll oft niður á miðju og skiptu þeir Ian Jeffs, Arnar Sveinn og Guðmundur ótt og títt um stöður í þeim tilgangi að fá betri flæði á sóknarleik Valsmanna auk þess það hefur væntanlega haft truflandi áhrif á varnarleik Stjörnunnar.

Garðbæingar voru hinsvegar ekki svipur á sjón og eitthvað andleysi var ríkjandi hjá leikmönnum liðsins. Voru seinir í allar aðgerðir hvort sem það var sóknaruppbygging eða færsla á varnarlínu.

Sanngjarn sigur Vals á slökum Stjörnumönnum. Valsmenn hífðu sig upp í fimmta sæti deildarinnar á meðan Stjarnan situr enn föst í því sjöunda.

Valur - Stjarnan 5-1

1-0 Martin Pedersen víti (19. mín)

2-0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (35. mín)

3-0 Arnar Sveinn Geirsson (41. mín)

3-1 Halldór Orri Björnsson víti. (67. mín)

4-1 Jón Vilhelm Ákason (81. mín)

5-1 Matthías Guðmundsson 92. Mín)

Áhorfendur: 784

Dómari: Kristinn Jakobsson 7

Skot (á mark): 14-9 (7-6)

Varin skot: Kjartan: 5 - Bjarni: 3

Horn: 7-5

Aukaspyrnur fengnar: 9-10

Rangstöður: 4-3

Valur 4-5-1

Kjartan Sturluson 6

Stefán Jóhann Eggertsson 7

Atli Sveinn Þórarinsson 8

Greg Ross 6

Martin Meldgaard Pedersen 7

Arnar Sveinn Geirsson 6

(84., Þórir Guðjónsson -)

Sigurbjörn Hreiðarsson 6

Rúnar Már Sigurjónsson 6

(77., Diarmuid O´Carroll -)

Ian Jeffs 7

Guðmundur Steinn Hafsteinsson 7

(89., Matthías Guðmundsson -)

Jón Vilhelm Ákason 8 - maður leiksins

Stjarnan 4-5-1

Bjarni Þórður Halldórsson 5

Jóhann Laxdal 4

Marel Baldvinsson 5

(64., Dennis Danry 4)

Daníel Laxdal 4

Hilmar Þór Hilmarsson 3

Arnar Már Björgvinsson 5

(73., Bjarki Páll Eysteinsson -)

Björn Pálsson 4

Atli Jóhannsson 4

Halldór Orri Björnsson 6

Þorvaldur Árnason 5

(84., Víðir Þorvarðarsson -)

Ólafur Karl Finsen 3






Fleiri fréttir

Sjá meira


×