Innlent

Maðurinn ófundinn - þyrla kölluð út

Þyrlan er útbúin hitamyndavél sem vonast er til að komi að góðum notum við leitina.
Þyrlan er útbúin hitamyndavél sem vonast er til að komi að góðum notum við leitina. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Gangnamaðurinn sem saknað hefur verið við Hrossafell síðan í morgun er ófundinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna leitarinnar. Þá eru leitarhundar komnir á svæðið, að sögn Höskuldar Erlingssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Blönduósi. Þyrlan er útbúin hitamyndavél sem vonast er til að komi að góðum notum við leitina.

Björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu hafa leitað mannsins, sem er á fimmtugsaldri, frá því í dag. Gangnmaðurinn var við leitir þegar hann missti frá sér hest þannig að hann þurfti að fara á eftir honum. Um klukkan 10 í morgun náðist samband við manninn. Hann hafði þá náð hesti sínum og var sagt að koma í Kambadal og hitta félaga sína. Síðan hefur ekkert til hans spurst en maðurinn er lítt kunnugur á svæðinu.

Um 50 björgunarsveitarmenn taka nú þátt í leitinni en þokusuddi gerir leitarmönnum erfitt fyrir. Höskuldur segir að fleiri björgunarsveitarmenn séu í startholunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×