Frelsisher Kosovo seldi líffæri 16. desember 2010 03:30 Skurðlæknirinn Lutfi Dervishi (t.h.) er talinn vera höfuðpaur alþjóðlegs líffærasöluhrings. Hann kemur hér út úr dómshúsi í Pristina á þriðjudag ásamt Arban syni sínum.
Frelsisher Kosovo myrti fjölda almennra borgara sem teknir höfðu verið til fanga og seldi úr þeim líffærin eftir að stríðinu í Kosovo lauk árið 1999. Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu svissneska þingmannsins Dick Marty, sem er kunnur fyrir rannsókn Evrópuráðsins á fangaflugi bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Glæpirnir voru samkvæmt skýrslunni framdir í Fushi-Kruje í Norður-Albaníu, nálægt helsta alþjóðaflugvelli landsins. Fórnarlömbin, bæði andstæðingar Frelsishers Kosovo og Serbar, voru skotin og skurðlæknar námu síðan úr þeim líffærin. Í skýrslunni er Drenica-hópurinn svokallaði bendlaður við málið, en leiðtogi hans er Hashim Thaci, núverandi forsætisráðherra Kosovo og fyrrverandi foringi í Frelsishernum. Ríkisstjórn Kosovo kallar skýrsluna rógburð en hún verður til umfjöllunar á þingi Evrópuráðsins í janúar næstkomandi. Á þriðjudag var tekið fyrir tengt dómsmál í Pristina í Kosovo þar sem sjö manns eru sakaðir um aðild að umsvifamiklum alþjóðlegum líffærasöluhring. Saksóknari sagði þá að sjúklingar frá Kanada, Þýskalandi, Póllandi og Ísrael hefðu greitt á bilinu 80-100 þúsund evrur hver fyrir líffæri úr fátæklingum frá Austur-Evrópu og Mið-Asíu.- mt
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Sjá meira