Enski boltinn

Mancini: Vonandi kemur Maradona líka á næsta leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roberto Mancini og Mark Hughes ganga til leiks í dag.
Roberto Mancini og Mark Hughes ganga til leiks í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, var að sjálfsögðu ánægður eftir 4-1 útisigur liðsins á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum komst liðið aftur upp í fjórða sæti deildarinnar og er nú aðeins þremur stigum á eftir toppliðum Chelsea og Manchester United.

„Við vonum að Diego Maradona geti líka komið á næstu leiki okkar ef að það hefur svona góð áhrif á liðið," sagði Roberto Mancini í léttum tón en að vakti mikla athygli að fyrrum þjálfari argentínska landsliðsins, Diego Maradona, var meðal áhorfenda á Craven Cottage.

„Þegar þú tapar þá ertu kallaður heimskur stjóri en þegar þú vinnur þá ertu frábær stjóri," sagði Mancini en fyrir leikinn hafði hann mátt þola mikla gagnrýni enda liðið búið að gera tvö markalaus jafntefli í röð og ekki búið að vinna nema einn af síðustu fimm leikjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×