Brutust inn í 30 sumarbústaði - einn í gæsluvarðhaldi 2. júní 2010 22:55
Lögreglumenn frá Akranesi og Borgarnesi hafa staðið í ströngu í dag og hafa flestallir lögreglumenn frá báðum stöðum verið við störf. Bíll frá sérsveit ríkislögreglustjóra tók að sér eftirlit og útköll í umdæmunum um tíma í dag svo lögreglumenn embættanna gætu sinnt þeim verkefnum sem leysa þurfti. Í gærkvöldi var maður handtekinn vegna gruns um innbrot í sumarbústað í nágrenni Akraness. Þrír til viðbótar voru svo handteknir vegna sama máls í dag. Við yfirheyrslur vaknaði grunur um að mennirnir væru einnig viðriðnir innbrot og skemmdarverk í fleiri bústöðum í Borgarfirði. Eins og staðan er nú er mennirnir grunaðir um innbrot í liðlega 30 sumarbústaði. Einn, sá er handtekinn var í gær, var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á næsta mánudag á tíunda tímanum í kvöld. Um miðjan dag fóru þessir sömu lögreglumenn í húsleit á Akranesi í þeim tilgangi að stöðva kannabisræktun sem grunur lék á að væri í gangi. Við leitina fundust 6 kannabisplöntur sem voru vel á veg komnar og um það bil 20 grömm af öðrum fíkniefnum. Tollverðir með leitarhunda aðstoðuðu lögregluna við leitina. Þegar liðið var á kvöld var tilkynnt að stórum blómapotti hefði verið kastað inn um glugga á íbúðarhúsi.Tveir lögreglumenn fóru á vettvang. Þegar þangað kom reyndist mikill hiti í fólki og óskuðu þeir eftir fleiri lögreglumönnum á vettvang. Tveir til viðbótar fóru til aðstoðar. Lögreglumenn urðu allt í einu varir að öðrum lögreglubílnum var ekið burtu og varð ljóst að einhver hafði einfaldlega stolið honum. Var honum að sjálfsögðu snarlega veitt eftirför og stöðvaði hann aksturinn eftir nokkur hundruð metra. Sá er sat undir stýri var handtekinn og reyndist bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Mest lesið Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Erlent Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Innlent Benz brann í Breiðholti Innlent Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Innlent Minnihlutinn mætir ekki á morgun Innlent Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Innlent Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Erlent Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Innlent Fleiri fréttir Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Hrósaði meirihlutanum og sendi þeim gamla pillu Árásir á Íran og átök á Alþingi Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Ísland fyrsta landið til að dreifa Naloxone í öll fangelsi Segir reikninginn ekki enda hjá eldri borgurum Nemandinn sem stakk Ingunni nítján sinnum: Segir „tæknilega séð mögulegt“ að hann geri það aftur Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp Landlæknir vísar málflutningi Kalla Snæ á bug Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu bókun 35 í nærri hálfan sólarhring Tilkynnt um barn með vopn og vímuefni Jón Óttar kærir Ólaf Þór fyrir rangar sakargiftir Gömlum Flugfélagsþristi bætt við á Sólheimasand Sjá meira