Innlent

Ikea-vaskur í lúxusíbúð Jóns Ásgeirs - leigjandi höfðar mál

Hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir.
Hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir.
Leigjandi lúxusíbúðar Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur í New York hefur höfðað skaðabótamál gegn hjónunum vegna innréttinga sem þau létu setja upp í íbúðinni. Fjallað er um stefnuna vef New York Daily News í kvöld og þar kemur fram að málið snýst meðal annars um ljótan eldhúsvask úr Ikea.

Það er leigufélagið Paramount Realty Group sem höfðar málið en félagið telur að eldhús íbúðarinnar sé of ljótt fyrir glæsiíbúð af þessari gerð. Ikea sé þekkt lágvöruverslun og því óboðlegt að bjóða upp á innréttingar frá fyrirtækinu í íbúðinni.

Eldhúsið hafi auk þess orðið leigufélaginu til skammar. Í ofanálag hafi loftkæling og sturta í íbúðinni verið í ólagi. Leigufélagið fer fram 52 þúsund dollara í bætur eða rúmar 6,6 milljónir króna. Fram kemur í umfjöllun New York Daily News að félagið borgaði 312 þúsund dollara í leigu á síðasta ári.

MYND/Rob Bennett fyrir New York Times
Jón Ásgeir og Ingibjörg keyptu íbúðina sem er á besta stað á Manhattan í lok árs 2006. Fáeinum mánuðum síðar keyptu þau þakíbúð í glæsihúsinu og sameinuðu eignirnar. Úr varð rúmlega 750 fermetra íbúð með 200 fermetra svölum sem snúa út í Gamercy-garðinn.

Talið er að þau hafi þurft að reiða fram 24 milljónir dollara, eða 3 milljarða, fyrir íbúðirnar á sínum tíma. Hjónin settu íbúðina á sölu fyrir rúmu ári.




Tengdar fréttir

Brúðkaup ársins í norðangarra og kulda

Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttur gengu í það heilaga á laugardaginn. Hjónakornin héldu síðan veglega veislu í Hafnarhúsinu þar sem Ný Dönsk og Gus Gus léku fyrir dansi.

Jón Ásgeir selur einkaflugvél og snekkju

Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður hefur selt einkaþotu sína og 50 metra langa snekkju. ,,Það er ágætt að eiga þessa hluti en það er pottþétt hægt að lifa án þeirra," segir Jón í viðtali við Sunday Times.

Jón Ásgeir selur lúxusíbúð í New York

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, og eiginkona hans Ingibjörg Pálmadóttir hafa ákveðið setja lúxusíbúð þeirra á Manhattan í New York á sölu. Þau vilja frá 25 milljónir dollara eða 3 milljarða króna fyrir íbúðina, samkvæmt The New York Times.

Víkingastyttan af Hard Rock er á skrifstofu Jóns Ásgeirs

Jón Ásgeir Jóhannesson er í viðtali í nýjasta tölublaði Business Week. Þar ræðir hann við blaðamann um mögulega yfirtöku Baugs á bandarísku lúxusversluninni Saks í New York auk þess sem farið er yfir feril hans. Í viðtalinu kemur meðal annars fram að styttan af Leifi Heppna sem stóð í Hard Rock Café í Kringlunni á meðan sá staður var og hét, er niðurkomin í höfuðstöðvum Baugs í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×