Innlent

Björk Guðmundsdóttir gagnrýnir Magma-viðskiptin harðlega

Björk Guðmundsdóttir er ósátt við viðskipti Magma.
Björk Guðmundsdóttir er ósátt við viðskipti Magma.

„Ég get ekki lengur staðið þögul hjá vegna einkavæðingar á íslenskri náttúru," segir Björk Guðmundsdóttir í lesendabréfi sem birtist á heimasíðu tímaritsins Grapevine og er á ensku.

Björk hvetur þar íslensk stjórnvöld til þess að gera allt sem í valdi þeirra stendur til þess að koma í veg fyrir að Magma Energey haldi meirihluta sínum í HS Orku.

„Þetta eru hræðileg viðskipti og þau skapa hættulegt fordæmi," segir Björk ennfremur í bréfi sínu og vill meina að salan á HS Orku til Magma gangi gegn vilja þjóðarinnar um umgengisrétt varðandi náttúruauðlindir hennar.

Fyrir áhugasama má lesa bréfið hennar Bjarkar hérna.


Tengdar fréttir

Telur Magma traustari bakhjarl en GGE

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að bæjarstjórnin muni láta meta fjárhagslega getu Magma Energy og skoða hvort áhætta bæjarsjóðs aukist við það að móðurfélagið Magma Canada taki yfir greiðslu á 6,3 milljarða króna skuldabréfi sem bærinn á og Geysir Green Energy (GGE) gaf upphaflega út.

Stjórnvöld vilja stytta leigutíma Magma á auðlindum

Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur eignast 98,53 prósenta hlut í HS Orku. Sænskt dótturfélag þess keypti hlut Geysis Green Energy í fyrirtækinu. Stjórnvöld höfðu óskað eindregið eftir því að beðið væri með undirskrift þar til eftir ríkisstjórnarfund í dag, ekki var orðið við þeirri ósk.

Segja Beaty hafa sagt ósatt

Ross J. Beaty, forstjóri Magma Energy, er sagður hafa sagt blaðamönnum tímaritsins Reykjavík Grapevine ósatt um fyrirætlanir fyrirtækisins hér á landi.

Vill hækka raforkuverð til stórfyrirtækja

Raforka til álvera hefur verið seld of ódýrt, hér á landi. Alltof ódýrt. Þetta segir Ross Beaty, forstjóri og stjórnarformaður kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy en það keypti í dag hlut Geysis Green Energy í HS Orku. Hann boðar hækkun á raforkuverði til stóriðju en ekki til heimila.

Ögmundur: Hrikaleg tíðindi

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, segir samkomulag Magma Energy og Geysir Green Energy um að Magma kaupi öll hlutabréf Geysis í HS-Orku vera hrikaleg tíðindi. Alþingi og ríkisstjórnin verði að grípa í taumanna.

Vilja fá Magma til að minnka nýtingarréttartímann

Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt að fara þess á leit við forsvarsmenn Magma Energy að nýtingarréttur HS Orku á orkuauðlindum verði minnkaður í 40 til 45 ár í stað þess að hann verði 65 ár eins og nú er.

Salan verður rædd í ríkisstjórn

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði í dag að salan á HS Orku til Magma Energy verði rædd í ríkisstjórn á morgun. Málið var rætt í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag og þar sagði Steingrímur ennfremur að vonir hafi verið bundnar við að lífeyrissjóðir kæmu inn í dæmið og keyptu eignarhlut Geysis Green Energy.

Ríkisstjórnin skoðar aðkomu að HS Orku

Fulltrúar kanadíska fyrirtækisins Magma Energy munu ganga á fund ráðherra í dag þar sem möguleg aðkoma ríkisins að málum HS Orku verður rædd. Ekki var tekin ákvörðun um sölu á hlut Geysis Green í HS Orku til Magma í gær. Boðað verður til blaðamannafundar um málið í dag.

Rannsaka þurfi allt söluferlið á HS orku

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ítrekar, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi, þá grundvallarstefnu sína að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera sameign hennar.

Sem betur fer ráða stjórnvöld ekki för í sölu HS Orku

„Rétt er að rifja upp að þegar Magma Energy festi fyrst hlut í HS Orku fyrir nokkrum misserum tók hluti ríkisstjórnar og alþingismanna því afar illa og fann flest til foráttu. Enn eru þeir sömu við sitt heygarðshorn. Sem betur fer ráða þeir ekki för í þessu máli," segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í tilkynningu um kaup Magma Energy á HS Orku.

Magma Energy eignast 98,5% hlut í HS Orku

Dótturfyrirtæki kanadíska jarðhitafyrirtækisins Magma Energy og Geysir Green Energy hafa náð samkomulagi um að Magma kaupi öll hlutabréf Geysis í HS Orku og verður Magma þar með aðaleigandi félagsins með 98,5% hlut.

SA fagna sölunni á HS Orku

Samtök atvinnulífsins fagna samkomulagi um kaup Magma Energy á stórum hlut í HS Orku. Í tilkynningu frá SA segir að með samkomulaginu hafi sterkt erlent fyrirtæki eignast ráðandi hlut í HS Orku og jafnframt lýst yfir áformum um að standa að öflugri uppbyggingu jarðvarmavirkjana hér á landi.

Árni bæjarstjóri: Óvíst hvaða áhrif hærra orkuverð hefur

Óvíst er hvaða áhrif boðanir forstjóra Magma á hækkun á orkuverð til stóriðju mun hafa á aðkomu fjárfesta að álverinu í Helguvík. Þetta segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hann segist þó telja að svigrúm sé til hækkanna. Hann hafnar fullyrðingum um að kaup Magma séu fjármögnuð með opinberu fé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×