Magma Energy eignast 98,5% hlut í HS Orku 17. maí 2010 10:36 Frá blaðamannafundnum í dag. Ross J. Beaty, stjórnarformaður og forstjóri Magma, sést hér fyrir miðju. Kaupverðið er um 16 milljarðar króna.
Dótturfyrirtæki kanadíska jarðhitafyrirtækisins Magma Energy og Geysir Green Energy hafa náð samkomulagi um að Magma kaupi öll hlutabréf Geysis í HS Orku og verður Magma þar með aðaleigandi félagsins með 98% hlut. Kaupverðið er um 16 milljarðar króna. Forsvarsmenn Magma ætla sér að efla starfsemi HS Orku til muna á næstu misserum og fá jafnframt til liðs við sig sterka kjölfestufjárfesta, t.d. íslenska lífeyrissjóði. Í tilkynningu segir að samkomulagið felur í sér að Magma Energy Sweden AB, sem er að fullu í eigu Magma Energy Corp. sem skráð er í kauphöllinni í Toronto, eignist 52,3% hlut Geysis í HS Orku hf. og yfirtaki jafnframt nýlegar skuldbindingar Geysis um kaup á viðbótarhlutafé sem nemur 3% hlutafjár HS Orku. Magma verður þar með langstærsti hluthafi félagsins með 98,53% hlut en aðrir hluthafar í HS Orku eru sveitarfélögin Garður, Grindavík, Reykjanesbær og Vogar - með samanlagt 1,47% hlut en skv. samþykktum HS Orku eiga hluthafar félagsins forkaupsrétt að viðskiptum með hluti í félaginu, í réttu hlutfalli við eignarhlut sinn. Kaupverðið á hlut Geysis í HS Orku er um 16 milljarðar króna og verður það greitt með reiðufé og yfirtöku skuldabréfa. Hluti greiðslunnar getur þó verið í formi hlutabréfa í kanadíska móðurfélaginu. Eftir viðskiptin nemur heildarfjárfesting Magma í íslensku atvinnulífi samtals rúmum 32 milljörðum króna. „Það er okkur mikið ánægjuefni að hafa náð þessu samkomulagi og HS Orka er nú orðið flaggskip okkar í enn frekari sókn á sviði jarðhitanýtingar, bæði hér á Íslandi og á alþjóðavettvangi," segir Ross J. Beaty, stjórnarformaður og forstjóri Magma. „Við stöndum frammi fyrir afar þýðingarmikilli uppbyggingu gufuaflsvirkjana hér á Suðurnesjum, s.s. stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari rannsóknum og framkvæmdum til að efla atvinnuuppbyggingu, bæði svæðisbundið og á landsvísu. Við hyggjumst auka hlutafé HS Orku og höfum hug á að fá þar til liðs við okkur trausta kjölfestufjárfesta, t.d. íslenska lífeyrissjóði, til að tryggja að HS Orka geti hafist handa við nauðsynlegar framkvæmdir og rannsóknir því við viljum sýna Íslendingum að við ætlum að reka þessa starfsemi með langtímahagsmuni allra hlutaðeigandi að leiðarljósi." Forstjóri Magma áréttar einnig að einn mesti styrkleiki HS Orku sé hin mikla þekking og reynsla á sviði jarðhitanýtingar sem starfsfólk fyrirtækisins og fagaðilar á Íslandi búi yfir. „Þetta eru mikil verðmæti sem munu nýtast Magma til enn frekari sóknar á alþjóðlegum mörkuðum." Alexander K. Guðmundsson, forstjóri Geysis segir að með sölunni á HS Orku sé verið að fylgja ákvörðun stjórnar Geysis í þá átt að lækka skuldir félagsins með sölu eigna."Salan léttir verulega á skuldum Geysis og auðveldar félaginu til muna að styðja við aðrar eignir í eignasafninu." Alexander fagnar því að traustur fjárfestir með getu til að tryggja og efla enn frekar starfsemi HS Orku til framtíðar hefur nú eignast félagið. „Við höfum átt frábært samstarf við Magma í stjórn HS Orku undanfarna mánuði og ég er ánægður með þessi viðskipti. Ég veit að stjórn HS Orku verður í tryggum höndum og ég er þess fullviss að áfram verður haldið því þróunar- og uppbyggingarstarfi sem þegar hefur verið markað og byggir á þekkingu og reynslu frumkvöðlanna hjá HS Orku,"segir Alexander. Alexander bendir jafnframt á að HS Orka hafi nýlega aukið eigið fé með framlagi frá eigendum sínum sem styrkti félagið verulega og gerir því kleift að ráðast í áframhaldandi uppbyggingu gufuaflsvirkjana á Suðurnesjum.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent