Innlent

Vilja fá Magma til að minnka nýtingarréttartímann

mynd/ valli.

Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt að fara þess á leit við forsvarsmenn Magma Energy að nýtingarréttur HS Orku á orkuauðlindum verði minnkaður í 40 til 45 ár í stað þess að hann verði 65 ár eins og nú er.

Þá kom einnig fram á fundinum að stjórnvöld vilji tryggja að íslenska ríkið fái forkaupsrétt að HS Orku, vilji Magma selja fyrirtækið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×