RÚV: Eiður Smári á leið frá Stoke Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. desember 2010 22:26 Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Stoke. Nordic Photos / Getty Images
Fréttastofa Ríkissjónvarpsins hefur það eftir sínum heimildum að Eiður Smári Guðjohnsen hafi komist að samkomulagi við forráðamenn Stoke City í Englandi um starfslok. Ítrekað hefur verið fjallað um hversu lítið Eiður Smári hefur fengið að spila hjá Stoke síðan hann kom til félagsins á lokadegi félagaskiptagluggans í sumar. Hann hefur reyndar aldrei fengið tækifæri í byrjunarliði Stoke og aðeins komið inn á sem varamaður í fjórum deildarleikjum, síðast í október. Hann lék í um klukkutíma með Stoke gegn West Ham í ensku deildabikarkeppninni þann 27. október síðastliðinn. Síðan þá hefur hann ekkert spilað, nema með varaliðinu. Eiður gekk í raðir Stoke frá franska félaginu Monaco í sumar. Tony Pulis, stóri félagsins, hefur reyndar greint frá því að franska félagið greiði enn hluta launa hans. Pulis hefur einnig oft fullyrt að Eiður Smári sé ekki í nægilega góðu formi fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni og segir aðalástæðuna vera að hann sé of þungur. Eiður á glæsilegan feril að baki og varð tvívegis Englandsmeistari með Chelsea. Árið 2006 var hann keyptur til Barcelona og varð hann spænskur meistari, spænskur bikarmeistari og Evrópumeistari með félaginu. Hann gekk í raðir Monaco árið 2009 en þar náði hann sér aldrei á strik. Hann var lánaður til Tottenham á síðari hluta síðasta tímabils og skoraði þá tvö mörk. Ekki náðist í Arnór Guðjohnsen, umboðsmann og föður Eiðs Smára, við vinnslu fréttarinnar, né heldur Eggert Skúlason, fjölmiðlafulltrúa hans.Uppfært: Fótbolti.net heldur því sama fram á vef sínum í kvöld.
Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn