Erlent

Kröfur Palestínumanna tefja friðarviðræður

Mynd/AP
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, óttast að friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna geti tafist um allt að því ár láti Palestínumenn ekki af kröfum sínum um að Ísraelar hætti við að reisa 1600 nýjar íbúðir gyðinga í austurhluta Jerúsalem. Ekki sé um landnemabyggð að ræða þar sem borgin sé hluti af Ísrael. Netanyahu segir að kröfur Palestínumanna séu bæði óskynsamlegar og ósanngjarnar.

Ákvörðun ísraelskra yfirvalda að leyfa byggingu íbúðanna hefur víða verið mótmælt. Arababandalagið, Evrópusambandið, Bretar og Frakkar leggjast alfarið gegn fyrirhuguðum framkvæmdum. Bæði Barack Obama, Bandaríkjaforseti, og varaforsetinn Joe Biden sem var í heimsókn í Ísrael þegar greint var ákvörðuninni hafa gagnrýnt Ísraela. Samband Bandaríkjastjórnar og ráðamanna í Ísrael hefur ekki verið jafn slæmt um langt skeið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×