Tryggvi: Vonandi fyrsta stigið af mörgum Jón Júlíus Karlsson skrifar 17. maí 2010 22:26 Tryggvi í teignum í kvöld. Mynd/Anton „
Við vorum líklegri til að hirða öll þrjú stigin í lokin. Þetta var mikill baráttuleikur hjá okkur og þurftum að hlaupa mikið eftir að við urðum manni færri. Þetta var flott stig hjá okkur og vonandi það fyrsta af mörgum í sumar,“ sagði Tryggvi Guðmundsson, Eyjapeyi, eftir 1-1 jafntefli við Val að Hlíðarenda í kvöld. Eyjamenn börðust af hörku, sérstaklega eftir að Yngvi Magnús Borgþórsson fékk að líta rauða spjaldið á 22. mínútu, og uppskáru gott stig. Eyjamenn hafast nú við á höfuðborgarsvæðinu vegna öskufalls í Vestmannaeyjum og Tryggvi segir að nú verði slegið upp í æfingarferð. „Þessi leikur tók mikið á kraftana og það verður gott að slaka aðeins á með að skella sér í Bláa Lónið. Við ætlum að nýta okkur þessa stöðu sem einskonar æfingarferð og við höfum verið svo heppnir að fá að æfa hjá liðum hér í Reykjavík og á Suðurnesjum. Við eigum þrjá erfiða útleiki fyrir höndum og því gott að geta æft vel saman.“ Tryggvi á enn eftir að opna markareikninginn á ný fyrir Eyjamenn en hann var afar farsæll fyrir framan mark andstæðinganna þegar hann lék með ÍBV á árum áður. Tryggvi segir að mörkin séu á leiðinni. „Ég á enn eftir að fá færi til að skora. Það riðlaði auðvitað okkar leik í kvöld að við misstum mann útaf og ég þurfti því að færa mig neðar á völlinn. Ég mun skora mörk fyrir Eyjamenn í sumar, það hlýtur að detta inn eitt.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina Sjá meira