Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2026 08:02 Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson fóru meðal annars með Ísland á HM í Rússlandi 2018. Getty/Shaun Botterill Úr því að Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands til margra ára á langbestu árum í sögu liðins, kom ekkert við sögu í Tallinn í gærkvöld er ljóst að hann nær ekki að bæta landsleikjamet Birkis Bjarnasonar.
Birkir lék sinn 113. og síðasta A-landsleik fyrir fjórum árum og var líkt og Aron lykilmaður í velgengni Íslands á árunum 2012-2018 þegar liðið komst meðal annars í 8-liða úrslit á EM og á HM í fyrsta sinn. Aron tilkynnti fyrir leikina sex í Þjóðadeildinni nú í haust að keppnin yrði hans síðasta með landsliðinu og að svo myndi hann kveðja. Þá hafði hann leikið 110 A-landsleiki og vantaði því bara fjóra leiki til að slá met Birkis. Akureyringarnir gætu deilt metinu Aron lék hins vegar aðeins einn af fjórum leikjum Íslands í nýafstaðinni leikjatörn og nú eru bara tveir leikir eftir, gegn Búlgaríu 13. nóvember og svo heimaleikur við Lúxemborg 16. nóvember á Laugardalsvelli. Akureyringarnir gætu því enn átt eftir að deila leikjametinu ef Aron spilar báða þessa leiki en nú er að minnsta kosti ljóst að Birkir missir ekki metið. Birkir og kona hans Sophie Gordon tilkynntu svo um mun meiri gleðitíðindi í gær því þau eiga von á sinni annarri dóttur næsta vor. View this post on Instagram A post shared by Sophie Gordon (@gordonsophie) Parið eignaðist sína fyrstu dóttur, Sofiu Lív, vorið 2024. Gylfi næstur í röðinni Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði fyrir leikinn við Búlgaríu um síðustu helgi að hann myndi gjarnan vilja gera Aroni kleift að slá met en að það gæti aldrei verið eitthvað sem hann hugsaði um þegar hann stýrði leikjum. „Ég var eiginlega búinn að steingleyma því [að Aron gæti mögulega slegið leikjametið]. Þetta snýst ekkert um það, ég skil mjög vel að það væri hrikalega stór stund ef þetta myndi gerast í þessum glugga og svo út nóvember. En svoleiðis atriði má bara ekki hafa áhrif á dómgreind okkar sem erum í þjálfarateyminu. Það eru alls konar atriði sem skipta meira máli, en það væri frábært. Ég er mjög mikill rómantíkus í fótbolta, það væri geggjað ef hann myndi ná þessu leikjameti og við að fagna sigri í riðlinum í nóvember eftir leik á móti Lúxemborg. En það veltur bara á ýmsu. Það er liðsheildin, og hvernig við förum að því að ná árangri sem skiptir öllu máli,“ sagði Arnar. Nú þegar ljóst er að Aron mun ekki slá landsleikjamet Birkis er Gylfi Þór Sigurðsson sá eini sem gæti náð því á næstu árum. Gylfi, sem er 37 ára eða ári yngri en Birkir, lék alla fjóra leikina í Þjóðadeildinni nú, þrátt fyrir brotið rifbein, og er kominn með 90 A-landsleiki. Hann á markamet landsliðsins sem er 28 mörk.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira