Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Valur Páll Eiríksson skrifar 7. október 2026 14:33 DeAndre Kane varð Íslandsmeistari með Grindavík 18. maí en ellefu dögum síðar handtekinn við komuna heim til Pittsburgh. Nú er óvíst hvort hann komi til Íslands í haust líkt og til stóð. mynd/Sigurður Ingi Pálsson DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur í Bónus-deild karla í körfubolta undanfarin ár, lætur ekki ná í sig þessa dagana. Óljóst er hvort hann komi til með að spila fyrir liðið í vetur líkt og til stóð.
Kane hefur leikið með Grindavíkurliðinu síðan árið 2023 og varð Íslandsmeistari með liðinu í vor. Þegar hann fór heim til Pittsburgh í Bandaríkjunum í vor var hann hins vegar tekinn fastur vegna skuldar í meðlagsgreiðslur sem námu rúmlega 12 milljónum króna. Honum var svo sleppt og greindu Grindvíkingar frá því við Vísi í sumar að búist væri við honum aftur hingað til lands í haust. Nú eru aftur á móti tveir dagar í fyrsta leik, og raunar fór fyrsti leikur Grindavíkur fram síðustu helgi í Meistarakeppni KKÍ, og enn bólar ekkert á kraftframherjanum. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, segir Grindvíkinga ekki hafa náð símasambandi við Kane síðustu daga, en það sé þó ekkert nýtt. „Það er í raun ekkert nýtt að maður nái ekki í hann, það hefur verið vandamál síðan hann kom hérna fyrst fyrir fjórum árum síðan. Það er bara business as usual,“ segir Jóhann í samtali við Vísi. En í ljósi málsins sem kom upp í vor, er þá ekkert stress að hann sé ekki að koma til landsins líkt og til stóð? „Jú, það er það. Og verður tvísýnna með hverjum deginum sem líður. Við höfum ekki náð í hann í einhverja fjóra daga núna og erum svona farnir að huga að því hvernig við bregðumst við ef hann kemur ekki. Þetta er persónulegt mál sem hefur tekið á hann og það er óljóst hvað verður. Við gefum þessu út daginn og sjáum svo til,“ „Það er fyrsti leikur á föstudaginn svo það þarf að fara að huga að þessu. Það er enn á plani að hann komi og við erum ekki farnir beint í það að skoða aðra kosti. Við gefum þessu aðeins meiri tíma og þá förum við að skoða okkar mál,“ segir Jóhann. Grindavík var án lykilmanna í stórtapi fyrir KR í Meistarakeppninni. Ólafur Ólafsson og Daniel Mortensen voru frá og þá var Jeremy Pargo nýlentur frá Bandaríkjunum og spilaði leikinn ekki. Jóhann hefur þó ekki of miklar áhyggjur af stöðunni. „Óli (Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur) verður frá í einhvern tíma og vonandi að hann geti spilað eitthvað fyrir áramót. Það er styttra í Daniel (Mortensen), vonandi einhverjar tvær vikur. Það er ekkert stórmál, við höfum séð það svartara.“
UMF Grindavík Bónus-deild karla Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sjá meira