Nýfundin tegund var áður útbreidd í Asíu 27. desember 2010 15:00 Bein Denisovans-fornmannsins hafa fundist í Denisova hellinum í Síberíu.Mynd/Max Planck I.E.A.
Fornmenn sem uppi voru í Síberíu fyrir meira en 30 þúsund árum blönduðust nútímamönnum. Þetta sýnir greining á erfðaefni fornmannanna og frumbyggja eyja norðaustur af Ástralíu, sem sagt er frá í nýjasta hefti vísindaritsins Nature. Síberísku fornmennirnir, sem kallaðir eru Denisovans, áttu sameiginlegan forföður með nútímamönnum, rétt eins og Neandertalsmenn. Aðeins eru níu mánuðir frá því að vísindamenn fundu fyrst leifar Denisovans. Þau bein sem hafa fundist til þessa hafa ekki verið stór, aðeins eitt fingurbein og ein tönn hafa verið grafin upp. Denisovans og Neandertalsmenn eiga það sameiginlegt að hafa verið uppi á sama tíma og nútímamenn, og að hafa blandast afmörkuðum hópum nútímamanna áður en tegundirnar urðu útdauðar. Það kom vísindamönnunum sérstaklega á óvart að síberísku fornmennirnir hafa blandast forfeðrum frumbyggja í Melanasíu, eyjum eins og Nýju-Gíneu og Fídji. Bein Denisovans-fornmannanna hafa hingað til aðeins fundist í Denisova-hellinum í Suður-Síberíu. Skyldleikinn þykir benda til þess að þessi tegund fornmanna hafi verið útbreidd í Asíu fyrir um 45 þúsund árum, þegar forfeður íbúa Melanesíu komu fyrst til Nýju-Gíneu. Erfðaefni þessara síberísku fornmanna sýnir að þeir áttu sameiginlegan forföður með Neandertalsmönnum. Sá átti aftur sameiginlegan forföður með nútímamanninum. - bj
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira