Öll orkan fer í að slökkva elda 7. janúar 2010 04:15 Ekki kemur til greina að staðfesta ríkisábyrgð áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram þrátt fyrir að lögin sem forsetinn synjaði staðfestingar hafi formlega tekið gildi, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Fréttablaðið/Stefán
Bresk og hollensk stjórnvöld leggja áherslu á að staða Icesave-málsins skýrist sem fyrst, en samtöl við ráðamenn þar hafa ekki breytt neinu um þá stöðu sem upp er komin í kjölfar synjunar forseta Íslands á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hann segir fjármálaráðherra Bretlands og Hollands hafa verið vinsamlegri í samtölum við sig en í viðtölum við fjölmiðla. Allir séu sammála um að töf á úrlausn málsins sé báðum til tjóns. Steingrímur segir sína orku fyrstu dagana eftir ákvörðun forsetans fara í að slökkva elda. „Það er augljóst hvað [þarf að gera] núna, það er að verja landið eins og hægt er, draga úr neikvæðum áhrifum af [ákvörðun forsetans], og halda virkum stjórnmálatengslum milli Íslands, gagnaðilanna og nágrannalandanna.“ Stórskaðleg umræða fór af stað víða erlendis eftir blaðamannafund forsetans á þriðjudag, segir Steingrímur. Víða hafi fjölmiðlar talið að ákvörðun hans þýddi að Ísland ætlaði ekki að standa við sínar skuldbindingar. Með snörum viðbrögðum hafi vonandi tekist að bæta mesta skaðann. „Að sjálfsögðu ætlum við ekki að láta þann stimpil festast á Íslandi að við ætlum ekki að axla okkar skyldur í samfélagi þjóðanna,“ segir Steingrímur. „Það eru vonbrigði að þetta setji í óvissu þrotlaust puð síðustu mánaða við að byggja hlutina hér upp og komast áfram. Þetta setur það óneitanlega í óvissu, það verður bara að horfast í augu við það, en við gerum allt sem við getum til að áhrifin af því verði sem minnst,“ segir Steingrímur.- bj
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira