Erlent

Tvö stór flutningaskip í árekstri undan strönd Danmerkur

Tvö stór flutningaskip rákust saman í morgun um 20 sjómílur vestur af bænum Hritshals við norðurodda Danmerkur. Um gámaflutningaskip er að ræða.

Samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla fossar sjór inn í lestar annars skipsins í gegnum stórt gat á síðu þess eftir áreksturinn. Mikill fjöldi björgunarbáta er á leið á slysstaðinn auk þess að þyrla frá dönsku landhelgisgæslunni er komin að skipunum.

Þá hefur sérstakt mengunarvarnaskip einnig verið sent á staðinn en ekki er vitað um neinn olíuleka enn. Svo virðist sem áreksturinn hafi orðið þegar annað skipanna reyndi að sigla framúr hinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×