Innlent

Grunaður um kerfisbundin og skipulögð efnahagsbrot

Magnús Guðmundsson er gunaður um brot sem eiga sér ekki hliðstæðu hér á landi.
Magnús Guðmundsson er gunaður um brot sem eiga sér ekki hliðstæðu hér á landi.

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Haviland bankans, er grunaður um markaðsmisnotkun með hlutabréf í Kaupþingi samkvæmt greinagerð sérstaks saksóknara sem var lögð fyrir Héraðsdóms Reykjavíkur þegar krafist var gæsluvarðhalds yfir honum fyrir helgi.

Alls er Magnús sakaður um fimm brot. Hann er grunaður um umboðssvik, skjalabrot og brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti.

Þá telur sérstakur saksóknari að um stórfellt auðgunarbrot sé að ræða sem hafi valdið Kaupþingi gríðarlegu fjártjóni.

Ennfremur segir í greinagerðinni að brotin séu umfangsmikil, kerfisbundin og skipulögð.

Mál af þessari stærðargráðu eigi sér ekki hliðstæðu í rannsóknum sakamála hér á landi og víðar væri leitað, hvað fjárhagslega hagsmuni varðar samkvæmt greinagerðinni.

Brotin sem Magnús er grunaður um á hann að hafa framið þegar hann var bankastjóri í Kaupþingi í Lúxemborg. Fyrir liggur, samkvæmt greinagerðinni, að yfirheyra allt að tuttugu einstaklinga.

Magnús og Hreiðar eru í gæsluvarðhaldi. Þá voru þeir Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings og Steingrím Kárason, fyrrverandi framkvæmdastjóra áhættustýringar, handteknir í dag. Ekki liggur fyrir hvort fari verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim.




Tengdar fréttir

Magnús Guðmundsson einnig handtekinn

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg og núverandi forstjóri Banque Havilland, var líkt og Hreiðar már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, handtekinn í dag í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum tengdum Kaupþingi.

Í gæsluvarðhald vegna gruns um stórfelld efnahagsbrot

Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson hafa báðir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Magnús var úrskurðaður í sjö daga gæsluvarðhald en Hreiðar már í tólf daga gæsluvarðhald.

Hreiðar Már handtekinn vegna gruns um fjölmörg brot

Til grundvallar á handtöku sérstaks saksóknara í dag liggur grunur um skjalabrot, auðgunarbrot, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti, þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks gegn hlutafélagalögum.

Hreiðar fluttur í fangaklefa

Yfirheyrslum yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings er lokið í bili en hann var á níunda tímanum í kvöld fluttur í fangaklefa í lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Eftir að Hreiðar var handtekinn í hádeginu var hann yfirheyrður í húsnæði embættis sérstaks saksóknara við Laugaveg 166.

Hreiðar Már kominn niður í Héraðsdóm Reykjavíkur

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, hefur verið færður fyrir dómara vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar. Dómarinn tók sólarhringsfrest til þess að ákveða hvort fallist yrði á kröfu sérstaks saksóknara um tveggja vikna gæsluvarðhald yfir Hreiðari Má.

Hreiðar er grunaður um fleiri brot en Magnús

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Hreiðari Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni. Ástæða þess að farið var fram á lengra gæsluvarðhald yfir Hreiðari en Magnúsi er sú að Hreiðar er grunaður um fleiri brot en Magnús, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Kaupþingsstjórar yfirheyrðir um helgina

Starfsmenn á vegum sérstaks saksóknara yfirheyrðu þá Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg, um helgina. Magnús var jafnframt bankastjóri Banque Havilland, sem reistur var á rústum

Hreiðar Már kominn á Litla Hraun

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemburg, verða vistaðir á Litla Hrauni á meðan að þeir eru í gæsluvarðhaldi.

Skýrslutöku af Magnúsi lokið

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu eftir að skýrslutöku lauk rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Magnús og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, voru handteknir í dag í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum tengdum Kaupþingi.

Hreiðar gæti átt 8 ára fangelsi yfir höfði sér

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, gæti átt yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi veðri hann fundinn sekur um þau brot sem hann er grunaður um. Sérstakur saksóknari handtók Hreiðar Má í dag eftir skýrslutökur.

Voru samstiga í námi og inn í Kaupþing

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings Group, og Magnús Guðmundsson, sem áður stýrði Kaupþingi í Lúxemborg, eru jafnaldrar og luku báðir stúdentsprófi árið 1990. Hreiðar er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og Magnús frá Menntaskólanum við Sund. Þeir hófu á sama tíma nám við viðskiptaskor Háskóla Íslands á endurskoðunarsviði og útskrifuðust saman árið 1994. Báðir voru svo ráðnir til Kaupþings í maí 1994. Hreiðar Már var ráðinn framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Hávöxtunarfélagsins hjá Kaupþingi og Magnús forstöðumaður hjá Kaupþingi, að því er fram kemur í Viðskipta- og hagfræðingatalinu. - óká

Hreiðar og Magnús báðir komnir á Litla Hraun

Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, sem báðir hafa verið dæmdir í gæsluvarðhald vegna meintra efnahagsbrota sem tengjast Kaupþingi, eru báðir komnir á Litla Hrauni þar sem þeir verða næstu dagana í einangrun.

Yfirheyra þarf tugi manna áður en varðhaldinu lýkur

Sérstakur saksóknari hyggst nýta tímann sem Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjórar Kaupþings, sitja í gæsluvarðhaldi til að yfirheyra alla þá sem tengjast meintum lögbrotum tvímenninganna.

Hreiðar kominn til yfirheyrslu

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er kominn til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara.

Rannsóknin í fullum gangi um helgina

Rannsókn sérstaks saksóknara á meintum lögbrotum Kaupþings verður í fullum gangi um helgina og eru fjölmargar yfirheyrslur framundan. Sérstakur saksóknari hyggst nýta tímann sem Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjórar Kaupþings sitja í gæsluvarðhaldi, til að yfirheyra þá sem tengjast meintum lögbrotum bankans.

Rökstuddur grunur um fjölda afbrota Hreiðars Más

„Samkvæmt gögnum málsins er varnaraðili (Hreiðar Már Sigurðsson innsk. blm.) undir rökstuddum grun um að hafa framið fjölmörg brot er fangelsisrefsing liggur við," segir í úrskurði Hæstaréttar þar sem rétturinn staðfestir gæsluvarðhaldið yfir Hreiðari Má. Visir.is hefur úrskurðinn undir höndum.

Annar maður handtekinn

Nú síðdegis handtók sérstakur saksóknari einn mann til viðbótar í tengslum við sömu rannsókn og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings var handtekinn í dag. Hreiðar er grunaður um fjölmörg brot í starfi.

Framburður Hreiðars Más stangast á við aðra

Framburður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, stangaðist á við framburð annarra einstaklinga sem hafa gefið skýrslu í rannsókn sérstaks saksóknara samkvæmt fréttavef Viðskiptablaðsins sem hefur úrskurð Hæstaréttar undir höndum.

Hæstaréttarlögmaður: Gæsluvarðhald tveimur árum of seint

Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir í pistli á Pressunni.is að það séu ekki skilyrði fyrir gæsluvarðhaldi yfir Hreiðar Má Sigurðssyni í lögum að hans mati. Eins og kunnug er þá tók héraðsdómi sólarhringsfrest til þess að kveða upp um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Hreiðari. Úrskurðurinn ætti að liggja fyrir í hádeginu í dag.

Hreiðar Már Sigurðsson handtekinn

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var handtekinn af sérstökum saksóknara í hádeginu í dag. Farið var fram á tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. Dómari tók sér sólarhrings umhugsunarfrest og verður Hreiðar Már því í haldi lögreglu að minnsta kosti til morguns.

Ákvörðun um gæsluvarðhald i dag

Hreiðar Már Sigurðssson fyrrverandi forstjóri Kaupþings, sem var handtekinn í gærdag eftir yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara, var aftur kallaður til yfirheyrslu í gærkvöldi, sem lauk á ellefta tímanum.

Lektor: Markaðsmisnotkun á meðal alvarlegustu brota

Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, segir að það komi ekki á óvart að Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson hafi verið handteknir á grundvelli markaðsmisnotkunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×