Vill freista þess að ljúka Icesave innan mánaðar 12. maí 2010 23:00 Össur Skarphéðinsson segir möguleiki á að Icesave samkomulag náist fyrir kosningar í Hollandi. Mynd/ Pjetur.
Ríkisstjórnin vill láta á það reyna hvort unnt sé að ná Icesave-samkomulagi við Breta og Hollendinga fyrir þingkosningarnar í Hollandi eftir tæpan mánuð og ræddi málið við forystumenn stjórnarandstöðunnar í dag.Fyrir þá sem voru búnir að gleyma Icesave, þá er rétt að rifja upp að þjóðin kaus um málið fyrir rétt rúmum tveimur mánuðum eftir að forseti Íslands sendi það í þjóðaratkvæði.Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir það sitt mat að dagana fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hafi bara verið þumlungur á milli. Samningur hafi þá verið að smella á sem hafi verið töluvert miklu betri en Íslendingar hafi áður gert sér vonir um.Nú þegar bresku kosningarnar eru frá og enn fjórar vikur til þingkosninga í Hollandi vill ríkisstjórnin freista þess að klára málið, þrátt fyrir viðsjár í evrópskum fjármálum.Össur segir ýmislegt benda til þess að það sé núna gluggi, fyrir hollensku kosningarnar, og hann sé þeirrar skoðunar að það eigi að láta á það reyna.Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, segir að samninganefndin hafi ennþá umboð til að semja fyrir hönd ríkisins og það hafi ekki verið kallað til baka. Hvort þeir hafi efasemdir um framhaldið svavar Gunnar Bragi að, ef eitthvað sé, þá nái Íslendingar betri samningi en verið hefur upp á borðinu. Samningsstaða Íslands hafi batnað frekar en hitt.
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Fleiri fréttir Strandveiðar færast yfir í innviðaráðuneytið Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Sjá meira