Willum: Andinn og hugarfarið til staðar Elvar Geir Magnússon skrifar 19. september 2010 19:51 „
Þetta var fjörugur leikur og sóknarleikurinn í hávegum hafður," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, eftir að hans lið tapaði 5-3 í Kaplakrikanum. „Ég held nú að bæði lið hafi ætlað að verjast skipulega en það eru öflugir sóknarmenn í báðum liðum en við gerðum fullmikið af mistökum sem kostaði okkur. Það er dýrt gegn liði eins og FH sem er fljótt að refsa þér." „Í heild sinni er ég sáttur við framlag liðsins. Við erum að spila á heimavelli FH-inga sem eru í titilbaráttu. Ég var sannfærður um að ef okkur tækist að jafna 3-3 myndi leikurinn vinna með okkur því pressan var á þeim að vinna leikinn. Því miður náðum við ekki að fylgja því eftir heldur sýndu þeir að það er engin tilviljun að þeir eru í titilbaráttu ár eftir ár." Hvernig gengur að mótivera liðið þegar það hefur að engu að keppa á lokasprettinum? „Mér finnst það hafa gengið ágætlega. Keflavíkurliðið er félagslega sterk eining og með reynda stráka. Það sést alveg á okkar leik að undanförnu að andinn og hugarfarið er til staðar og við gefið allt í þetta," sagði Willum. Síðasti leikur Keflavíkur verður gegn ÍBV á Keflavíkurvelli en Eyjamenn eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. „Ég á ekki von á nokkru öðru en að það verði ekkert stórmál að hvetja liðið í þann leik enda erum við með afreksleikmenn á þessu getastigi. Auðvitað er erfitt fyrir keppnismenn þegar innri hvatningu vantar, þegar menn ætla sér mikið en markmiðið þitt fjarar út. Það leitar á menn og það er erfiðara að gíra sig upp í verkefnið en við förum yfir það og gefum allt okkar í lokaleikinn," sagði Willum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Hættir með landsliðinu Fótbolti Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Fleiri fréttir Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjá meira