Rottur látnar þefa uppi jarðsprengjur 15. nóvember 2010 06:00 Rotturnar eru þjálfaðar í að þefa uppi sprengiefni. Þær eru léttari en hundar og því minni hætta á að sprengjurnar springi.nordicphotos/AFP
Í tveimur Afríkuríkjum, Tansaníu og Mósambík, hafa rottur verið notaðar með góðum árangri til þess að hreinsa jarðsprengjusvæði. Jarðsprengjur eru vandamál í meira en hundrað löndum. Þær hafa undanfarin tíu ár kostað nærri tuttugu þúsund manns lífið og limlest tugi þúsunda að auki. Hættulegt er að hreinsa jarðsprengjusvæði, en sé það ekki gert verða íbúar landanna í hættu um ókomna framtíð. Fyrirtæki í Tansaníu, sem nefnist APOPO, hefur því brugðið á það ráð að þjálfa upp rottur til þess að sinna þessu þjóðþrifaverkefni. Hundar hafa einnig verið notaðir með góðum árangri til að þefa uppi jarðsprengjur í sumum löndum, en annars er oftast notast við gamaldags málmleitartæki eða nýlegri ratsjárbúnað. Rotturnar hafa þann kost að þær eru léttari en hundar og því miklu minni hætta á að sprengjurnar springi þegar þær eru að athafna sig. Afar sjaldgæft er að slíkt gerist. Þjálfun þeirra tekur einnig skemmri tíma en þjálfun hunda, auk þess sem hundarnir eru dýrari og þurfa meiri umönnun. Reyndar munu vísindamenn í Kanada hafa komist að því að hunangsflugur er hægt að nota til að finna jarðsprengjur. Þær eru sagðar bæði nákvæmari og fljótari en hundar og rottur. Rotturnar eru gæddar góðu þefskyni. Þær eru þjálfaðar til að þefa uppi sprengiefni. Síðan eru þær sendar út á jarðsprengjusvæði. Nákvæmlega er fylgst með þeim og þegar þær nema staðar og byrja að krafsa í jörðina er staðurinn merktur inn á kort. Þegar svæðið allt hefur verið kortlagt eru menn sendir með málmleitartæki til að fjarlægja sprengjurnar. Þessi aðferð er miklu hraðvirkari en hefðbundin jarðsprengjuleit. Tveir menn eru venjulega heilan dag að hreinsa 200 fermetra svæði af jarðsprengjum, en með aðstoð tveggja rottna tekur það ekki nema tvo klukkutíma. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Sjá meira