Wayne Rooney gæti spilað á móti Wigan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2010 10:45 Wayne Rooney. Mynd/NordicPhotos/Getty
Wayne Rooney gæti spilað á nýjan leik með Manchester United á móti Wigan um næstu helgi en hann mun byrja að æfa á fullu með liðinu í þessari viku. Rooney hefur verið frá í meira en mánuð vegna ökklameiðsla. Rooney fór í endurhæfingu til Bandaríkjanna og átti í fyrstu að vera frá fram í lok nóvember. Hann spilaði síðast með United-liðinu í 2-2 jafntefli á móti West Brom 16. október síðastliðinn. „Mun hann spila? Við munum skoða hann betur og meta stöðuna fyrir helgi," sagði Mike Phelan, aðstoðarstjóri Manchester United. „Wayne er búinn að æfa vel og æfingaáætlunin sem hann fór í gegnum hefur gengið mjög vel. Þetta kemur allt betur í ljós seinna í vikunni," sagði Phelan. Rooney meiddist á æfingu fyrir Bursaspor-leikinn í Meistaradeildinni sem fram fór 19. október. Hann tilkynnti síðan að hann væri á förum frá Old Trafford en snérist síðan hugur nokkrum dögum seinna og skrifaði undir nýjan fimm ára samning. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Wayne Rooney kemur út úr þessu hléi en fyrir það hafði hann aðeins skorað tvisvar í 21 leik með Manchester United og enska landsliðinu.
Mest lesið HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Margar ákvarðanir hjá dómurunum sem ég á erfitt með að lifa með“ Handbolti Sjáðu myndirnar: Blá krækiber í helvíti Handbolti Tekur Gísli of mikið pláss frá Ómari? Handbolti Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar eru orðnir stórir Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Danmörku: Hetjuleg frammistaða gegn heimsmeisturunum Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira