Innlent

Mörður: Hættið þessari vitleysu - fallið frá ákæru um árás á Alþingi

Mörður Árnason vill að ríkissaksóknari falli frá ákæru sinni varðandi árás á Alþingi.
Mörður Árnason vill að ríkissaksóknari falli frá ákæru sinni varðandi árás á Alþingi.

Þingmaður Samfylkingarinnar, Mörður Árnason, hvetur settan ríkissaksóknara, Láru V. Júlíusdóttur, til þess að endurskoða málsókn gegn níumenningunum svokölluðum en þeir hafa meðal annars verið ákærðir fyrir árás á Alþingi.

Á bloggi sínu á Eyjunni skrifar Mörður færslu undir forskriftinni: Hættiði þessari vitleysu. Hann skrifar svo:

„Þessi málsókn fyrir árás á Alþingi er auðvitað algerlega fáránleg, og þeim Láru, Sturlu og Ástu til háborinnar skammar."

Mörður gengur svo lengra og leggur til að saksóknarinn komi í veg fyrir það sem Mörður kallar „frekari niðurlægingu ákæruvaldsins og alþingis".

Mörður á þó einungis við hina umdeildu grein hegingarlaganna sem snýr að árás á Alþingi. Hann segir í lok færslunnar að eftir að fallið hefur verið frá þeirri ákæru sé hægt að semja um aðrar hugsanlegar sakir.

Málið hefur vakið mikla athygli og þá sérstaklega fyrir þær sakir að níu mótmælendur voru sérstaklega ákærðir en ekki hinir sem tóku þátt í mótmælunum. Þá hefur löggæsla í kringum dómsþingið verið sérstaklega mikil.

Bloggið hans má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×