Fréttamál vikunnar: Frá kynþáttahatri til gengislána Valur Grettisson skrifar 19. september 2010 16:31 Lögmenn fara yfir umdeildan úrskurð. Mynd / Stefán
Sennilega var gengisdómurinn stærsta fréttamál vikunnar en þá staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að gengistryggðir bílalánasamningar skyldu fylgja vöxtum Seðlabanka Íslands en ekki samningsvöxtum. Björn Þorri Viktorsson, lögfræðingur, sagði málið áfall fyrir neytendur og í sama streng tók Gísli Tryggvason, talsmaður Neytenda. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra taldi niðurstöðuna samræmast því sem hann teldi réttast. Í kjölfarið steig Árni Páll Árnason, nýskipaður efnahags- og viðskiptaráðherra fram, og boðaði lögsetningu sem tryggði sanngirni í afborgunum af gengislánum. Þar kom fram að eftirstöðvar lána minnka um allt að helming. Til stendur að leggja frumvarpið fram strax á haustþingi. Hér mál lesa meira. Vel yfir þúsund tóku þátt í göngunni sem endaði með tónleikum. Kúbverskir feðgar og meint kynþáttahatur Annað mál vakti gríðarlega athygli í vikunni en það voru fréttir af ofsóknum gagnvart kúbverskum feðgum. Það var Ríkissjónvarpið sem greindi fyrst frá málinu. Þar kom fram að málið hefði grundvallast á kynþáttahatri og að handrukkari hefði hótað feðgunum lífláti. Þeir flýðu land í kjölfarið. Maðurinn var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir. Vísir greindi svo frá því snemma í vikunni að sá sem var úrkskurðaður í varðhald var athafnamaðurinn Jón Hilmar Hallgrímsson. Sá hafði áður komist í kast við lögin þegar víkingasveitin ruddist inn á heimiliið hans á síðasta ári í þeirri trú að hann væri vopnaður. Það reyndist þó ekki rétt. Jóni var sleppt tveimur dögum fyrr en áætlað var, eða á miðvikudeginum. Verjandi hans, Sveinn Andri Sveinsson, gagnrýndi fjölmiðla fyrir harða framgöngu gagnvart skjólstæðingi sínum sem liggur undir áburði um kynþáttahatur. Það var svo Besti flokkurinn sem boðaði til Kærleiks- og friðargöngu á laugardaginn. Yfir þúsund manns mættu og sýndu fjölmenningarsamfélaginu stuðning í verki. Kúbversku feðgarnir komust þó ekki í gönguna þar sem þeir eru enn staddir erlendis. Von er á þeim í vikunni. Hér mál lesa meira. Prestur játaði kynferðisbrot Um miðja viku greindi Vísir frá því að prestur hefði leitað á tvo unglinga og fulltíða einstakling fyrir 25 árum síðan. Maðurinn játaði brot sín fyrir fagráði Biskupsstofu um kynferðisbrot. Málið reyndist vera fyrnt en Biskupsstofa sendi frá sér tilkynningu þar sem það var áréttað að presturinn sem um ræddi var hættur störfum auk og ætti ekki afturkvæmt. Hér er hægt að lesa meira. Atli Gíslason hefur átt annasama viku. Mynd / Stefán Atlanefndin og meintir misskilningar Þingheimur ræddi svo niðurstöður Atlanefndarinnar svokölluðu sem dró lærdóm af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Meðal niðurstaðna í skýrslunni var sú að fjórir ráðherrar Þingvallastjórnarinnar hefðu gerst brotlegir í andvaraleysi sínu í hruninu. Nefndin lagði til að eftirfarandi ráðherrar yrði ákærðir: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra og Fjármálaráðherrann Árni M. Mathíesen. Ekki náðist samstaða um þetta innan nefndarinnar. Hún þríklofnaði í málinu en Sjálfstæðismenn vildu ekki ákæra neinn á meðan Samfylkingin vildi ákæra alla nema Björgin G. Sigurðsson. Enginn af fyrrverandi ráðherrunum vildu tjá sig sérstaklega um málið. Geir sendi þó frá sér tilkynningu og bar af sér sakir. Ingibjörg Sólrún tók hinsvegar til varna á samskiptavefnum Facebook. Meðal annars hitti hún þingflokk Samfylkingarinnar á óformlegum fundi. Athygli vakti að aðeins helmingur þingmanna mættu. Allir ráðherrarnir létu þó sjá sig. Björgvini var einnig boðið til fundarins en hann afþakkaði boðið pent. Síðar fór Ingibjörg að munnhöggvast við Atla Gíslason, formann nefndarinnar, en hann lét hafa eftir sér að hún hefði misskilið málið. Því svaraði Ingibjörg að bragði, hún sagðist ekki hafa misskilið neitt, í raun væri ákæruvilji Atla á misskilningi byggður. Hér mál lesa frétt um málið. Þá má einnig lesa meira hér. Össur Skarphéðinsson þurfti að minna forsetann á utanríkisstefnu Íslands. Forsetanum svarað Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fór svo mikinn í Kína þar sem hann var í opinberri heimsókn. Þar sagði hann í viðtali að það væri vert að spyrja sig hverskyns félagsskapur ESB væri í raun og veru. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fann sig knúinn til þess að gagnrýna forsetann fyrir að fylgja ekki þeirri utanríkisstefnu sem væri samþykkt af Alþingi. Hér má svo lesa gagnrýni Össurar. Jón Gnarr mótmælti fangelsun samviskufanga.Mynd / Valgarður Mótmælti fangelsun samviskufanga Og meira af Kína. Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, tók á móti fyrrverandi borgarstjóra Peking, Liu Qi, í Ráðhúsi Reykjavíkur í vikunni. Með Liu var fimmtán manna sendinefnd. Töluðu þeir meðal annars um orkumál. Þegar að því kom að kveðjast afhenti Jón fyrrverandi borgarstjóranum bréf þar sem kínversk stjórnvöld eru gagnrýnd harðlega fyrir að handtaka og fangelsa andófsmanninn og ljóðskáldið Liu Xiaobo. Hann var dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir skoðanir sínar. Svo er því lýst þegar borgarstjórinn fyrrverandi varð heldur kindarlegur og uppnám varð á meðal sendinefndarinnar við móttöku bréfsins. Sendinefndin tók bréfið af Liu og stuttu síðar yfirgaf borgarstjórinn fyrrverandi, ásamt föruneyti, Ráðhúsið án þess að kveðja Jón formlega. Hérna má lesa spaugilega lýsingar af fundinum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók aftur sæti á þingi. Varaþingmaðurinn Óli Björn Kárason þurfti því frá að hverfa.Mynd / Stefán Snéri aftur á þing Í upphafi vikunnar snéri kunnuglegt andlit aftur á þing. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún tók sér leyfi frá þingstörfum fyrr á árinu á meðan þingnefnd fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis en hún og eiginmaður hennar Kristján Arason komu við sögu í skýrslunni. Varaþingmaður hennar, Óli Björn Kárason, þurfti því frá að hverfa en hann hafði látið til sín taka, meðal annars í umræðunni um fjölmiðlalögin. Hér er frétt um málið.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira