Innlent

Skammbyssan var óhlaðin

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

Karlmaður á sextugsaldri, sem var handtekinn með skotvopn á slysadeild Landspítalans í morgun, er andlega vanheill.

Lögreglan ræddi við hann í dag og kom í ljós að skotvopnið, sem var skammbyssa, var óhlaðin.

Ekki er ljóst hvað maðurinn vildi á slysadeildina en ljóst er að starfsfólkinu brá talsvert þegar hann sýndi þeim vopnið fyrirvaralaust.

Byssan var alltaf í hulstri en maðurinn ógnaði engum með henni. Sérsveit lögreglunnar var kölluð á vettvang og hún afvopnaði manninn um klukkan 11 í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er unnið að því að fá viðeigandi aðstoð handa manninum.




Tengdar fréttir

Maður á sextugsaldri afvopnaður á slysadeild

Maður á sextugsaldri var afvopnaður á Landspítalanum um klukkan ellefu í morgun. Maðurinn kom á spítalann til þess að sækja sér læknisþjónustu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×