Svartfjallaland í hópinn 18. desember 2010 06:30 Nicolas Sarkozy og Angela Merkel Leiðtogar Frakklands og Þýskalands tókust á um efnahagsmálin. nordicphotos/AFP
Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu í gær að veita Svartfjallalandi stöðu umsóknarlands, en búast má við að fjögur til fimm ár líði áður en aðildarviðræðum getur lokið með aðildarsamningi. Á fundinum, sem stóð í tvo daga, tókst einnig samkomulag um frekari aðgerðir í efnahagsmálum til að verjast kreppunni sem nú herjar illilega á nokkur aðildarlandanna. Samið var um nýtt kerfi til að bjarga ríkjum úr efnahagsvanda en ekki náðist samkomulag um að stækka neyðarsjóðinn sem settur var á laggirnar fyrr á þessu ári. „Svartfjallaland er fyrsta landið á vestanverðum Balkanskaga sem fær stöðu umsóknarlands í fimm ár,“ segir Slavica Milacic, ráðgjafi Milo Djukanovic forseta, en hún var sendiherra landsins hjá Evrópusambandin þar til fyrir skömmu. „Þetta er líka mjög mikilvægt fyrir þennan heimshluta vegna þess að með þessu er gefið skýrt merki um að aðlögunarferlið að ESB muni halda áfram.“ Af löndunum á vestanverðum Balkanskaga hefur aðeins Slóvenía fengið aðild að ESB til þessa, en auk Svartfjallalands hafa Króatía og Makedónía stöðu umsóknarlands. Króatar eru nýbúnir að ljúka aðildarviðræðum sínum við ESB og vonast til þess að fá aðild á næsta eða þarnæsta ári, hugsanlega um svipað leyti og Íslendingar. Aðildarviðræður við Makedóníu hafa verið í biðstöðu árum saman vegna deilu við Grikkland um nafn landsins, sem er samnefnt Makedóníuhéraði í Grikklandi. Albanía og Serbía hafa einnig sótt um aðild. Bosnía og Hersegóvína hefur einnig hafið þreifingar um aðild og sömu sögu er að segja af Kosovo.- gb
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira