Enski boltinn

King hittir sérfræðing vegna meiðslanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ledley King, leikmaður Tottenham.
Ledley King, leikmaður Tottenham. Nordic Photos / Getty Images
Ledley King hefur ekkert getað spilað með Tottenham undanfarinn mánuð vegna meiðsla í nára. Hann mun hitta sérfræðing í Kaupmannahöfn í næstu viku vegna meiðslanna.

King meiddist í leik Tottenham gegn Fulham í síðasta mánuði og hefur ekkert spilað síðan þá. „Þetta gengur hægt hjá Ledley," sagði Harry Redknapp, stjóri Tottenham. „Hann fer nú til Kaupmannahafnar þar sem metið verður hvort að hann þurfi að fara í aðgerð."

King hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða í mörg ár og hefur hann lítið sem ekkert getað æft á milli leikja vegna þeirra.

„Það er ekkert hægt að gera til að laga hnéð. Það er bara eins og það er," sagði Redknapp. „En það er hægt að gera eitthvað í þessum nárameiðslum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×