Atli Sveinn: Engin vonleysistilfinning Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. maí 2010 21:56 Atli Sveinn Þórarinsson. Mynd/Anton
Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði Vals, segir enga vonleysistilfinningu hafa gripið um sig í liðinu en liðið er nú með tvö stig eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins. Valur tapaði í kvöld, 2-0, fyrir Breiðabliki á heimavelli en allir leikir Vals í vor hafa farið fram á Vodafone-vellinum. „Við eigum að gera betur eftir þrjá heimaleiki," viðurkenndi Atli. „Ég er svekktur eftir þennan leik en núna er það bara næsti leikur sem gildir og hann verður gegn Grindavík á þriðjudaginn. Það er engin vonleysistilfinning komin í hópinn. Við vitum bara að við þurfum að leggja okkur betur fram í Grindavík því þar ætlum við okkur að taka stig." „Við byrjuðum mjög vel í kvöld og komum út af krafti. Við ætluðum að taka þá á okkar heimavelli. En svo skoruðu þeir. Við héldum áfram en þeir skoruðu svo aftur." „Þeir spila góðan sóknarleik og við nýttum ekki okkar færi. Það vantaði meiri aga í okkar varnarleik og við vorum ekki nógu duglegir að skila okkur heim þegar þeir beittu skyndisóknum." „Blikar eru duglegir að refsa fyrir mistök og þó svo að þetta hafi stundum litið ágætlega út hjá okkur þá var það ekki nóg." Atli Sveinn sagði það vissulega erfitt að halda dampi eftir að lenda undir en að það sé eitthvað sem þeir þurfi að vinna í. „Við munum aftur lenda undir í sumar og við þurfum að geta snúið leikjum líka við."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira