Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2026 15:01 Það gæti reynst Íslandi dýrkeypt að hafa bara náð í tvö stig í leikjunum við Eistland. vísir/Anton Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er efst í sínum riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar, eftir fjóra leiki af sex. Jafnteflin gegn Eistlandi gætu hins vegar reynst dýrkeypt í baráttunni um sæti á EM 2028 og taldar eru minna en þriðjungslíkur á að Ísland verði með á mótinu sem fram fer í Englandi, Wales, Skotlandi og Írlandi.
Með því að vinna sinn riðil í C-deildinni kemst Ísland upp í B-deild Þjóðadeildarinnar fyrir næstu leiktíð. En keppnin hefur líka áhrif á næsta stórmót, EM, og það er kannski það sem er mikilvægara í hugum margra. Fótboltatölfræðiveitan Football Meets Data metur núna líkur Íslands á að komast á EM 2028 sem 29%. Alls komast 24 þjóðir inn á mótið og eru tvö sæti frátekin fyrir gestgjafana fjóra ef á þarf að halda. 📊 To qualify for 🇪🇺 EURO 2028 (as of 7 Oct): 99.9% 🇪🇸 Spain 99.9% 🏴 England 99.5% 🇫🇷 France 99.2% 🇵🇹 Portugal 97% 🇳🇱 Netherlands 96% 🇨🇭 Switzerland 96% 🇧🇪 Belgium 94% 🇮🇹 Italy 93% 🇮🇪 Ireland 93% 🏴 Wales 93% 🏴 Scotland (📉 -2%) 93% 🇩🇪 Germany 91% 🇳🇴 Norway 89% 🇩🇰 Denmark 88% 🇭🇷 Croatia (📉 -1%) 84% 🇬🇷 Greece 83% 🇦🇹 Austria 72% 🇸🇪 Sweden 67% 🇹🇷 Türkiye 60% 🇭🇺 Hungary 54% 🇸🇮 Slovenia (📈 +12%) 51% 🇷🇸 Serbia 50% ☘️ Northern Ireland 48% 🇧🇦 BiH -- 47% 🇽🇰 Kosovo 47% 🇸🇰 Slovakia (📈 +3%) 47% 🇺🇦 Ukraine 46% 🇨🇿 Czechia (📉 -1%) 37% 🇵🇱 Poland 29% 🇮🇸 Iceland 27% 🇬🇪 Georgia 25% 🇮🇱 Israel 25% 🇦🇱 Albania (📈 +1%) 15% 🇷🇴 Romania 15% 🇲🇪 Montenegro 13% 🇲🇰 North Macedonia 12% 🇧🇾 Belarus (📈 +4%) 10% 🇫🇮 Finland (📉 -6%) 3% 🇧🇬 Bulgaria (📈 +1%) 3% 🇪🇪 Estonia 2% 🇫🇴 Faroe Islands 1% 🇨🇾 Cyprus 1% 🇱🇺 Luxembourg (📉 -1%) 1% 🇰🇿 Kazakhstan 1% 🇦🇲 Armenia 1% 🇦🇿 Azerbaijan 1% 🇲🇹 Malta 0.4% 🇲🇩 Moldova 0.3% 🇱🇹 Lithuania 0.1% 🇱🇻 Latvia 0.01% 🇬🇮 Gibraltar 👉 Full team-level projections and scenarios for EURO 2028 available in our Simulator— Football Meets Data (@fmeetsdata) October 7, 2026 Undankeppni EM fer fram á næsta ári og verður dregið í riðla í desember. Með því að vinna sinn riðil í C-deild Þjóðadeildarinnar tryggir Ísland sér sæti í 3. styrkleikaflokki í drættinum sem gæti reynst dýrmætt fyrir undankeppnina. Í henni verður svo spilað í 12 riðlum, með 4-5 liðum, og komast sigurliðin 12 inn á EM auk 8 af bestu liðunum í 2. sæti. Hin 4 liðin sem lenda í 2. sæti fara í umspil og í það umspil bætast á bilinu 4-9 lið úr Þjóðadeildinni (það veltur á árangri gestgjafanna eins og útskýrt verður nánar hér að neðan). Ef Ísland kemst ekki beint á EM þá er ljóst að liðið vill vera í þessum hópi. Ísland núna fyrir neðan hin toppliðin í C-deild En hvernig fengi Ísland þá eitt af þessum sætum í EM-umspilið, ef á þyrfti að halda eftir að liðið næði ekki 1. eða 2. sæti síns riðils í undankeppninni á næsta ári? Liðin sem vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni eiga sem sagt möguleika á að komast „bakdyramegin“ inn á Evrópumótið í gegnum umspil í mars 2028, rétt fyrir mótið. Þau munu ekki þurfa þennan möguleika ef þau komast beint á EM í gegnum undankeppnina en það munu samtals 20 lið gera. Sigurlið riðla í A- og B-deildum Þjóðadeildarinnar nú í haust, samtals 8 lið, verða alltaf á undan Íslandi í goggunarröðinni fyrir bakdyraleiðina en Ísland, takist liðinu að vinna sinn riðil, færist svo framar með hverju liði sem kemst á EM í gegnum undankeppnina á næsta ári. Eins og staðan er núna er Ísland hins vegar líka fyrir aftan hin þrjú toppliðin í C-deildinni í þessari goggunarröð. Svartfjallaland og Slóvakía eru með 10 stig hvort og Albanía 9 en Ísland aðeins með 8 stig fyrir síðustu tvær umferðirnar í nóvember. Alls má því segja að núna séu 11 lið (4 úr A-deild, 4 úr B-deild, 3 úr C-deild) fyrir framan Ísland í „bakdyraleiðarröðinni“ en alveg ljóst að einhver þeirra og sennilega meirihlutinn munu detta út því þau komast beint á EM. Það veikir hins vegar stöðu Íslands mikið í þessum efnum ef liðið endar með slakasta árangur sigurliða í C-deildinni. Íslandi veitir sennilega ekkert af því að vinna Lúxemborg og Búlgaríu aftur í nóvember.Getty/Alex Nicodim Þrjár útgáfur af umspilinu mögulegar og því mismörg sæti í boði Það sem flækir málin mikið er að vegna frátekinna sæta fyrir gestgjafa er ekki ljóst hvort það verða 4, 5, 6, 8 eða 9 sigurlið riðla í Þjóðadeildinni sem komast með þessum hætti í EM-umspilið. Ef það verða bara 4 lið er því ljóst að staða Íslands er núna ansi viðkvæm í þessum efnum en hún væri líklega ágæt ef 8 eða 9 sigurlið riðla í Þjóðadeildinni enda á að fá sæti í umspilinu. Þrjár mögulegar útfærslur á umspilinu koma til greina, eftir því hve margir gestgjafanna fjögurra komast beint á EM í gegnum undankeppnina. Munum að tvö sæti eru frátekin fyrir gestgjafa ef á þarf að halda og ef 3-4 gestgjafar komast ekki á EM í gegnum undankeppnina fá stigahæstu gestgjafarnir fráteknu sætin. A) Ef gestgjafarnir þurfa að nota bæði fráteknu sætin fara 8 lið í umspil um síðustu 2 lausu sætin á EM. Þar af verða 4, 5 eða 6 sigurlið úr Þjóðadeildinni, eftir því hvort 0, 1 eða 2 gestgjafar fara í umspilið með því að lenda í 2. sæti í undankeppninni. B) Ef gestgjafarnir nýta bara annað af fráteknu sætunum fara 12 lið í umspil um síðustu 3 lausu sætin á EM. Þar af vera 8 eða 9 sigurlið úr Þjóðadeildinni, eftir því hvort gestgjafi fer í umspilið með því að lenda í 2. sæti í undankeppninni. C) Ef gestgjafarnir þurfa ekki nein af fráteknu sætunum fara 8 lið í umspil um síðustu 4 lausu sætin á EM. Þar af verða 4 sigurlið úr Þjóðadeildinni. Eins og sjá má er því ómögulegt að svara því nákvæmlega hvaða árangur myndi duga til að Ísland væri öruggt um bakdyraleið inn í EM-umspilið en ljóst að hvert stig gæti skipt máli í leikjunum við Búlgaríu og Lúxemborg í nóvember. Svo væri auðvitað best að komast bara beint inn á EM í gegnum undankeppnina og þurfa ekkert umspil.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta EM 2028 í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira