Stuðningsmenn Vals brjálaðir út í Kristin Jakobsson Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. maí 2010 15:00 Kristinn hefur verið fremsti dómari landsins um árabil. Mynd/Daníel
Vítið sem Kristinn Jakobsson dæmdi í leik Vals og FH í gær var vafasamt og dómurinn fór ekki vel ofan í stuðningsmenn Vals sem vanda Kristni ekki kveðjurnar á spjallborði Vals.is. Einhverjir virðast hafa farið yfir strikið í gagrýni sinni á Kristin því vefstjóri hefur þurft að fjarlægja einhver ummæli á spjallsíðunni. Kristinn hefur lengi verið óvinsæll hjá Valsmönnum sem telja margir að það halli ávallt á þá er Kristinn heldur um flautuna. Það sem stendur hér að neðan má enn finna á spjallborði Vals. „Svona í alvörunni talað er það gjörsamlega óskiljanlegt að KR-ingur sé látinn dæma hjá Val. Þetta er eitthvað sem hefur verið talað um í nokkur ár. Hvað myndi Ferguson segja ef dómari frá Man City myndi dæma leik hjá united...?" skrifar Ási Sveinss á spjallborðið. „Hvernig væri nú að stjórn Vals tæki sig til og pressaði á KSÍ að láta KRistin ALDREI dæma aftur hjá Val? Það er komið nóg af þessum manni! Hann svoleiðis beið eftir tækifærinu til að gera einhvern skandal. Það er ekki nokkur vafi að það er fullur ásetningur af hans hálfu í að gera Val lífið leitt. Maðurinn er löngu búinn að toppa Braga Bergmann í ruglinu," skrifar maður sem kallar sig Max og hann bætir síðan við. „KRistinn hefur dæmt gegn Val í mörg ár. Við eigum fullan rétt á að vera ósáttir." „Er nú sammála mönnum hér að ofan. Það er með ólíkindum að honum sé hleypt inn á Hlíðarenda eftir þann skaða sem hann hefur valdið okkur í gegnum tíðina. Hann hikar aldrei við að dæma víti á Val," skrifar einstaklingur sem kýs að kalla sig Trifon. „Menn verða hins vegar að hrósa KR-ingnum í dómgæslunni. Hann er samkvæmur sjálfum sér og alltaf stöðugur þegar hann dæmir á Hlíðarenda. Hann virðist alltaf geta dæmt víti hér...alltaf stöðugur....spurning hvort það eigi ekki bara að byrja leiki hjá okkur þegar hann dæmir á vítaspyrnu gestaliðsins þá er það bara búið," skrifar jhv.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Fleiri fréttir Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Sjá meira