Fyrsta umferð Pepsi-deildarinnar klárast í kvöld - Svona fór í fyrra Hjalti Þór Hreinsson skrifar 11. maí 2010 13:00 Alfreð Finnbogason skoraði í fyrstu umferðinni í fyrra. Skorar hann í kvöld? Fréttablaðið
Það er mikil spenna fyrir leikina í Pepsi-deild karla í kvöld en þá klárast fyrsta umferðin. Valur og FH gáfu deildinni góð fyrirheit með fínum leik á Vodafone-vellinum í gær. Það er mikilvægt að byrja mótið vel og til upprifjunar tók Vísir saman gengi liðanna sem leika í kvöld á Íslandsmótinu í fyrra. Breiðablik mætti Þrótti í 1. umferðinni á síðasta tímabili á heimavelli. Liðið vann 2-1 sigur með mörkum frá Kristni Steindórssyni og Alfreð Finnbogasyni. Hjörtur Júlíus Hjartarson skoraði mark Þróttar. Keflavík byrjaði mótið með stæl. Það lagði FH á heimavelli sínum með einu marki gegn engu. Hólmar Örn Rúnarsson skoraði markið. KR byrjaði líka vel, með 2-1 heimasigri á Fjölni þar sem Björgólfur Takefusa og Jónas Guðni Sævarsson skoruðu. Jónas Grani Garðarsson skoraði mark Fjölnis. Fylkir vann Val 1-0 í fyrra með marki Kjartans Ágústs Breiðdal. Stjarnan og Grindavík mættust líka í fyrstu umferðinni í fyrra, einnig á heimavelli Stjörnunnar. Þann leik unnu Garðbæingar 3-1. Guðni Rúnar Helgason, Jóhann Laxdal og Halldór Orri Björnsson skoruðu fyrir spræka Garðbæinga en Gilles Ondo skoraði undir lokin fyrir Grindvíkinga. Fram og ÍBV mætast í kvöld líkt og í fyrsta leik í fyrra, og aftur á heimavelli Fram. Þá unnu Framarar 2-0 með mörkum Heiðars Geirs Júlíussonar og Hjálmars Þórarinssonar. Selfoss byrjaði einnig heima í 1. deildinni á síðasta tímabili. Liðið gerði þá 1-1 jafntefli við KA þar sem Guðmundur Þórarinsson skoraði markið. Hinir nýliðarnir, Haukar, byrjuðu úti líkt og í kvöld en þeir lögðu Leikni 0-2 með mörkum frá Guðjóni Pétri Lýðssyni og Anda Janussyni.Leikir kvöldsins: Breiðablik - Keflavík KR - Haukar Selfoss - Fylkir Stjarnan - Grindavík Fram - ÍBV - Beint á Stöð 2 Sport klukkan 20.00.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Fleiri fréttir Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Sjá meira