Biskup rúinn trausti Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. ágúst 2010 19:45 Andrés Jónsson almannatengill telur stöðu biskups vera veika.
Staða Karls Sigurbjörnssonar biskups er mjög veik, segir Andrés Jónsson, formaður Almannatengslafélags Íslands. Karl hefur staðið í miklum ólgusjó undanfarna sólarhringa vegna umræðu um kynferðisbrot innan Þjóðkirkjunnar. „Traust á stofnunum samfélagsins er almennt í sögulegu lágmarki og ríkari kröfur eru gerðar um trúverðugleika þeirra sem veita þessum stofnunum forystu," segir Andrés. Hann bendir á að Karl hiki ennþá við að setja Geir Waage af vegna glórulausra ummæla hans um þagnarskyldu presta gagnvart barnaníðingum. „Það logar allt vegna þessara ummæla," segir Andrés. Andrés segir að málefni tengd Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi, séu Karli ekki síður erfið. Í yfirlýsingu sem Karl sendi í gær hafi hann reynt að feta einstigið milli þess að bregðast við sögum kvenna af kynferðisbrotum og þess að fordæma Ólaf Skúlason. „Svo virðist sem ráðgjafar Karls hafi talið að tengsl hans við mál Ólafs gerðu honum erfitt fyrir að taka djúpt í árinni án þess að hann varpaði um leið skugga á eigin vinnubrögð í málinu. Persónulega þótti mér þetta ekki góð yfirlýsing og af viðbrögðum að dæma gerði hún ekkert til að slökkva óánægju, hvorki innan né utan kirkjunnar," segir Andrés. Náðarhöggið hafi svo komið í dag þegar í ljós kom að Karl fór rangt með málavöxtu í máli kvennanna sem sökuðu Ólaf um kynferðisbrot. „Eftir situr biskup rúinn trausti," segir Andrés. Andrés telur þó að Karl eigi nokkuð inni hjá þjóðinni fyrir mannlega framkomu sína í mörgum málum. „En um leið hefur hann sýnt það núna og svo sem áður í málum tengdum giftingum samkynhneigðra að hann neitar að hlusta á tíðarandann," segir Andrés.
Tengdar fréttir Aukinn áhugi á úrsögnum úr kirkjunni Starfsfólk Þjóðskrár Íslands verður vart við stíganda í fyrirspurnum frá fólki um það hvernig eigi að bera sig að við úrsagnir úr Þjóðkirkjunni. Þetta segir Haukur Ingibergsson, forstjóri stofnunarinnar, í samtali við Vísi. 23. ágúst 2010 12:00 Biskup Íslands segist ekki hafa þaggað niður kynferðisbrotamál Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta um að hann hafi átt einhvern þátt í því að hafa áhrif á meint fórnarlömb þáverandi biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar. 22. ágúst 2010 20:02 Fórnarlamb Ólafs Skúlasonar vill sannleiksnefnd Sigrún Pálína Ingvarsdóttir skorar á þjóðkirkjuna að setja saman sannleiksnefnd til að komast til botns í máli Ólafs Skúlasonar en Sigrún segir Karl Sigurbjörnsson biskup og Hjálmar Jónsson sóknarprest hafa reynt að sannfæra hana um að láta af ásökunum sínum á hendur Ólafi árið 1996. 23. ágúst 2010 18:22 Dómsmálaráðherra fundar með biskupi Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, fundar í dag með Karli Sigurbjörnssyni biskupi um málefni þjóðkirkjunnar. Tilefnið segir Ragna vera þau ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, að þagnarskylda presta sé hafin yfir landslög, jafnvel í tilfelli kynferðisbrota gegn börnum. 23. ágúst 2010 06:45 Biskup: Æðri dómstólar fara yfir mál séra Ólafs Karl Sigurbjörnsson biskup segir að á Íslandi séu menn saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð, kirkjan geti því lítið aðhafst í tengslum við ásakanir á hendur forvera sínum, Ólafi Skúlasyni. Aðrir og æðri dómstólar fari yfir hans mál. 20. ágúst 2010 19:11 Ábyrgðin hjá biskupi Þjóðkirkjan verður sjálf að leysa úr þeim málum sem á borði hennar eru núna. Þetta er niðurstaða Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra. Hún fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands um málefni Þjóðkirkjunnar í dag. „Ég hef skoðað þessi mál því ég vildi fullvissa mig um það hverjar skyldur ráðuneytisins eru í þessu máli. Það er alveg ljóst að þau verða alfarið leyst innan Þjóðkirkjunnar,“ segir Ragna. 23. ágúst 2010 16:30 Starfsmenn kirkjunnar þurfa að heimila aðgang að sakaskrá Þjóðkirkjan er nú að fara af stað með átak þar sem allir starfsmenn kirkjunnar verða beðnir um að samþykkja að heimila aðgang að sakaskrá með tilliti til kynferðislegs ofbeldis. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Kirkjuráð sendi frá sér í dag. 18. ágúst 2010 10:49 Séra Bjarni: Sjónarmið Geirs Waage varðar brottrekstur „Það er háskalegt og varðar hreinan brottrekstur úr prestsembætti að halda fram því sem sr. Geir Waage gerir," segir séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, um þá skoðun Geirs að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum sé algjör og þar sé engan milliveg að finna. 21. ágúst 2010 17:04 Prestur krefst rannsóknar á þöggun kirkjunnar Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur vill að kirkjan viðurkenni vanmátt sinn í máli Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttir og að óháð sannleiksnefnd verði skipuð til að fara yfir málið í heild sinni. 23. ágúst 2010 12:09 Skriftarbarn getur ekki bundið samvisku prestsins Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna greinar séra Geirs Waage og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar sagði Sveinn að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum væri algjöra og þar væri engan milliveg að finna. 21. ágúst 2010 16:33 Geir Waage: Ríkari trúnaðarskylda gildir um presta Geir Waage, prestur í Reykholti segir að tilkynningaskylda presta hafi litla raunhæfa þýðingu því án trúnaðar verði prestum aldrei trúað fyrir nokkru. Hann segir ríkari trúnaðarskyldu lagða á presta. Þetta kemur fram í grein sem Geir ritar í Morgunblaðið í dag. 23. ágúst 2010 08:37 Sigrún Pálína: Karl og Hjálmar reyndu að þagga niður í mér Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segir að eftir misheppnaðar sáttatilraunir við Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, hafi Karl Sigurbjörnsson, núverandi biskup, og Hjálmar Jónsson, núverandi Dómkirkjuprestur, reynt að þagga niður í henni. Karl hafi meðal annars vísað til þess að hún ekki gert sjúkri móður sinni það að halda málinu til streitu. Sjálfur segist Karl ekki hafa tekið þátt í að beita Sigrúnu óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að falla frá ásökunum sínum. 23. ágúst 2010 09:57 Biskup harmar rangfærslur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, harmar mistök sem hann gerði í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í gær. Þar sagði Karl að hafa verði í huga að Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, hefði kært Ólaf til ríkissaksóknara sem hafi ekki talið efni til að birta ákæru í málinu. Hið rétta er að Ólafur krafðist að fram færi opinber rannsókn rangs sakburðar og ærumeiðandi aðdróttana Sigrúnar og annarra kvenna. 23. ágúst 2010 12:41 Sakar biskup um rangfærslur Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, sakar Karl Sigurbjörnsson núverandi biskup um rangfærslur í orðsendingu til fjölmiðla í gær. Þar sagði Karl að hann hefði ekki tekið þátt í því að þagga mál Sigrúnar Pálínu niður. 23. ágúst 2010 11:40 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira
Aukinn áhugi á úrsögnum úr kirkjunni Starfsfólk Þjóðskrár Íslands verður vart við stíganda í fyrirspurnum frá fólki um það hvernig eigi að bera sig að við úrsagnir úr Þjóðkirkjunni. Þetta segir Haukur Ingibergsson, forstjóri stofnunarinnar, í samtali við Vísi. 23. ágúst 2010 12:00
Biskup Íslands segist ekki hafa þaggað niður kynferðisbrotamál Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta um að hann hafi átt einhvern þátt í því að hafa áhrif á meint fórnarlömb þáverandi biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar. 22. ágúst 2010 20:02
Fórnarlamb Ólafs Skúlasonar vill sannleiksnefnd Sigrún Pálína Ingvarsdóttir skorar á þjóðkirkjuna að setja saman sannleiksnefnd til að komast til botns í máli Ólafs Skúlasonar en Sigrún segir Karl Sigurbjörnsson biskup og Hjálmar Jónsson sóknarprest hafa reynt að sannfæra hana um að láta af ásökunum sínum á hendur Ólafi árið 1996. 23. ágúst 2010 18:22
Dómsmálaráðherra fundar með biskupi Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, fundar í dag með Karli Sigurbjörnssyni biskupi um málefni þjóðkirkjunnar. Tilefnið segir Ragna vera þau ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, að þagnarskylda presta sé hafin yfir landslög, jafnvel í tilfelli kynferðisbrota gegn börnum. 23. ágúst 2010 06:45
Biskup: Æðri dómstólar fara yfir mál séra Ólafs Karl Sigurbjörnsson biskup segir að á Íslandi séu menn saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð, kirkjan geti því lítið aðhafst í tengslum við ásakanir á hendur forvera sínum, Ólafi Skúlasyni. Aðrir og æðri dómstólar fari yfir hans mál. 20. ágúst 2010 19:11
Ábyrgðin hjá biskupi Þjóðkirkjan verður sjálf að leysa úr þeim málum sem á borði hennar eru núna. Þetta er niðurstaða Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra. Hún fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands um málefni Þjóðkirkjunnar í dag. „Ég hef skoðað þessi mál því ég vildi fullvissa mig um það hverjar skyldur ráðuneytisins eru í þessu máli. Það er alveg ljóst að þau verða alfarið leyst innan Þjóðkirkjunnar,“ segir Ragna. 23. ágúst 2010 16:30
Starfsmenn kirkjunnar þurfa að heimila aðgang að sakaskrá Þjóðkirkjan er nú að fara af stað með átak þar sem allir starfsmenn kirkjunnar verða beðnir um að samþykkja að heimila aðgang að sakaskrá með tilliti til kynferðislegs ofbeldis. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Kirkjuráð sendi frá sér í dag. 18. ágúst 2010 10:49
Séra Bjarni: Sjónarmið Geirs Waage varðar brottrekstur „Það er háskalegt og varðar hreinan brottrekstur úr prestsembætti að halda fram því sem sr. Geir Waage gerir," segir séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, um þá skoðun Geirs að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum sé algjör og þar sé engan milliveg að finna. 21. ágúst 2010 17:04
Prestur krefst rannsóknar á þöggun kirkjunnar Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur vill að kirkjan viðurkenni vanmátt sinn í máli Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttir og að óháð sannleiksnefnd verði skipuð til að fara yfir málið í heild sinni. 23. ágúst 2010 12:09
Skriftarbarn getur ekki bundið samvisku prestsins Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna greinar séra Geirs Waage og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar sagði Sveinn að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum væri algjöra og þar væri engan milliveg að finna. 21. ágúst 2010 16:33
Geir Waage: Ríkari trúnaðarskylda gildir um presta Geir Waage, prestur í Reykholti segir að tilkynningaskylda presta hafi litla raunhæfa þýðingu því án trúnaðar verði prestum aldrei trúað fyrir nokkru. Hann segir ríkari trúnaðarskyldu lagða á presta. Þetta kemur fram í grein sem Geir ritar í Morgunblaðið í dag. 23. ágúst 2010 08:37
Sigrún Pálína: Karl og Hjálmar reyndu að þagga niður í mér Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segir að eftir misheppnaðar sáttatilraunir við Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, hafi Karl Sigurbjörnsson, núverandi biskup, og Hjálmar Jónsson, núverandi Dómkirkjuprestur, reynt að þagga niður í henni. Karl hafi meðal annars vísað til þess að hún ekki gert sjúkri móður sinni það að halda málinu til streitu. Sjálfur segist Karl ekki hafa tekið þátt í að beita Sigrúnu óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að falla frá ásökunum sínum. 23. ágúst 2010 09:57
Biskup harmar rangfærslur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, harmar mistök sem hann gerði í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í gær. Þar sagði Karl að hafa verði í huga að Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, hefði kært Ólaf til ríkissaksóknara sem hafi ekki talið efni til að birta ákæru í málinu. Hið rétta er að Ólafur krafðist að fram færi opinber rannsókn rangs sakburðar og ærumeiðandi aðdróttana Sigrúnar og annarra kvenna. 23. ágúst 2010 12:41
Sakar biskup um rangfærslur Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, sakar Karl Sigurbjörnsson núverandi biskup um rangfærslur í orðsendingu til fjölmiðla í gær. Þar sagði Karl að hann hefði ekki tekið þátt í því að þagga mál Sigrúnar Pálínu niður. 23. ágúst 2010 11:40