Ábyrgðin hjá biskupi Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. ágúst 2010 16:30 Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindamálaráðherra, fundaði með biskupi í dag. Mynd/ Valgarður.
Þjóðkirkjan verður sjálf að leysa úr þeim málum sem á borði hennar eru núna. Þetta er niðurstaða Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra. Hún fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands um málefni Þjóðkirkjunnar í dag. „Ég hef skoðað þessi mál því ég vildi fullvissa mig um það hverjar skyldur ráðuneytisins eru í þessu máli. Það er alveg ljóst að þau verða alfarið leyst innan Þjóðkirkjunnar," segir Ragna. Varðandi ummæli séra Geirs Waage um að prestum bæri ekki að tilkynna vitneskju sína um kynferðisbrot gagnvart börnum segir Ragna að biskup hafi agavald yfir prestunum og það sé alfarið í hans höndum. Hins vegar hafi hún velt fyrir sér ákvæði í þjóðkirkjulögum um að ráðuneytið hafi umsjón með því að þjóðkirkjan fari að lögum. „Það felst ekki í því beint eftirlit en getur þó verið með þeim hætti að ef upp kæmi vafi um það hvernig túlka beri lagaákvæði að þá gæti ráðuneytið gefið álit sitt í því," segir Ragna. Varðandi þetta ákvæði bendir Ragna á að það sé skýr skilningur ráðuneytisins að enginn sé undanþeginn tilkynningaskyldu. „En það er líka skilningur biskups samkvæmt yfirlýsingu sem hann hefur gefið þannig að það er enginn misskilningur á skilningi manna hvað það snertir," segir Ragna. Sú tilkynningaskylda gangi framar öðru. Mikil umræða hefur verið að undanförnu um meint brot Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups, eftir að dóttir hans lýsti misnotkun hans fyrir Kirkjuráði. Ragna segir að það sé Þjóðkirkjunnar að leysa þessi mál. „Þegar kemur að öðrum málum, meintum agabrotum eða öðru slíku, að þá er það leyst samkvæmt þjóðkirkjulögum," segir Ragna.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira